Frétta­yf­ir­lit 9. sept­em­ber 2023

10 millj­ón­ir til Mar­okkó í kjöl­far skjálfta

10 milljónir til Marokkó í kjölfar skjálfta

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi hafa ákveð­ið að senda að lág­marki 10 millj­ón­ir króna til neyð­ara­stoð­ar í Mar­okkó vegna jarð­skjálft­ans sem reið þar yfir föstu­dags­kvöld­ið 8. sept­em­ber. Ís­lend­ing­um gefst kost­ur á að leggja lóð sín á vog­ar­skál­arn­ar með fram­lagi í neyð­ar­söfn­un.

Styrkja neyð­ar­að­gerð­ir í Mar­okkó

Eyðileggingin er gríðarleg í Marokkó, þúsundir hafa látið lífið og þörfin fyrir aðstoð er mikil. Eyðileggingin er gríðarleg í Marokkó, þúsundir hafa látið lífið og þörfin fyrir aðstoð er mikil.

SOS Barna­þorp­in í Mar­okkó í 40 ár

SOS Barna­þorp­in þekkja vel til í land­inu og hafa hjálp­að þar mun­að­ar­laus­um og yf­ir­gefn­um börn­um í um 40 ár. Sam­tök­in hafa þeg­ar haf­ið fyrstu neyð­ar­að­stoð á staðn­um og munu laga að­gerð­ir að að­stæð­um og þörf­um næstu daga og vik­ur.

Gera má ráð fyr­ir að sam­tök­in muni leggja áherslu á að hjálpa börn­um sem orð­ið hafa við­skila við for­eldra sína og misst sína allra nán­ustu.

Einnig þarf að hjálpa barna­fjöl­skyld­um sem misst hafa heim­ili sín og lífs­við­ur­væri. Þá er ljóst að fjöldi barna og full­orð­inna munu þurfa á að­stoð sér­fræð­inga að halda á næst­unni vegna áfall­a­streiturösk­un­ar.

SOS Barna­þorp­in reka fimm barna­þorp í Mar­okkó fyr­ir börn sem ekki eiga for­eldra sem séð geta um þau. 18 börn í SOS barnaþorpum í Marokkó eiga SOS-foreldra á Íslandi. Öll börn í barna­þorp­un­um eru heil á húfi. Ver­ið er að meta mögu­leg­ar skemmd­ir á bygg­ing­um.

Einnig eru sam­tök­in með fjöl­skyldu­efl­ingu í Mar­okkó sem hjálp­ar fá­tæk­ustu barna­fjöl­skyld­un­um til sjálfs­hjálp­ar og fjár­hags­legs sjálf­stæð­is.

Hér er hægt að gefa framlög í neyðarsöfnun SOS á Íslandi.

Jarð­skjálfti í Mar­okkó

Jarð­skjálfti í Mar­okkó

Jarðskjálfti í Marokkó

Jarð­skjálfti (6,8) skók Mar­okkó. Mörg börn hafa misst for­eldra sína. SOS Barna­þorp­in eru á staðn­um og hjálpa börn­um og fjöl­skyld­um í neyð. Vertu með okk­ur í að lina þján­ing­ar.

Styrkja