SOS sögur 12.mars 2026

Ungmenni gefa af sér til eldri borgara

Ungmenni gefa af sér til eldri borgara


Mjög algengt er víða um heim hjá fólki sem ólst upp í SOS barnaþorpum að sýna þakklæti sitt í verki á einhvern hátt eftir að það flytur á brott og fer að standa á eigin fótum. Við höfum dæmi frá Indlandi þar sem fyrrverandi SOS börn hittast reglulega og safna fyrir einhverju sem barnaþorpið þeirra vantar. Þetta er meðal þess sem fram kom í frásögn Sonam Gangsang í heimsókn hennar til Íslands.

Sjá einnig: Sjáðu Evu Ruzu ræða við Sonam um árin í SOS barna­þorpi

Persónuleg umönnun

Hópur ungs fólks í Perú, sem allt ólst upp í SOS barnaþorpi, hefur stofnað sjálfboðaliðafélag til að bæta félagslegar aðstæður fyrir eldri borgara og láta gott af sér leiða. Tvisvar í mánuði mæta þau á lítið hjúkrunarheimili í Ayacucho, í samstæðum íþróttagöllum, með handklæði, sápu og skæri í töskunni.
Á heimilinu búa átta eldri borgarar og unga fólkið aðstoðar við persónulega umönnun til að bæta vellíðan íbúanna.

Það er nuddað, þvegið og klipptar neglur. Það er nuddað, þvegið og klipptar neglur.

Spjallað og hlegið

Það er nuddað, þvegið og klipptar neglur – og það sem skiptir mestu máli: það er spjallað og hlegið. Sum ungmennanna taka eigin börn með sér því barnagæsla er ekki alltaf í boði. Börnin hlaupa um í garðinum og dreifa brosum á meðan „hreyfanlega snyrtistofan“ tekur á sig mynd með garðstólum og öðrum búnaði.

„Hreyfanlega snyrtistofan“ tekur á sig mynd með garðstólum og öðrum búnaði. „Hreyfanlega snyrtistofan“ tekur á sig mynd með garðstólum og öðrum búnaði.

Heimsækja líka barnaheimili

Og þetta duglega unga fólk lætur ekki þar við sitja. Það heldur áfram að miðla umhyggju. Ungmennin heimsækja einnig barnaheimili í nágrenninu þar sem þau skipuleggja afþreyingu og skapa nánd fyrir börn sem, líkt og hinir öldnu, sakna fjölskyldu og stöðugra tengsla.

Markmið unga fólksins er einfalt en kröftugt: að leggja sitt af mörkum til samfélags með meira félagslegt jafnrétti þar sem allir fá sömu tækifæri.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barnaþorp fyrir 4.500 kr