SOS sög­ur 21.ágúst 2015

Silf­ur og brons á heims­leik­un­um

Ni Made Sem­iati, yf­ir­leitt köll­uð Semi, er sautján ára og býr í SOS Barna­þorp­inu í Balí í Indó­nes­íu. Hún lagði leið sína á heims­leika fatl­aðra í sum­ar sem haldn­ir voru í Los Ang­eles, gerði sér lít­ið fyr­ir og land­aði öðru sæti í lang­stökki og því þriðja í 100 metra sprett­hlaupi.

Semi hef­ur þurft að tak­ast á við mik­ið mót­læti í líf­inu. Þeg­ar hún kom í SOS Barna­þorp­ið var hún afar vannærð og sýndi merki um að hafa staðn­að í þroska. Semi var vel tek­ið og varð fljótt mik­il­væg­ur hluti af fjöl­skyld­unni. Hún þurfti þó mikla alúð fyrst um sinn og tók það SOS móð­ur henn­ar, Win­arti, lang­an tíma að öðl­ast traust nýju dótt­ur sinn­ar.

„Sam­skipti okk­ar kröfð­ust sér­stakr­ar lagni fyrst um sinn. Ég þurfti að end­ur­taka allt sem sagt var til þess að hjálpa henni að skilja og tala. Þetta krafð­ist þol­in­mæði hjá okk­ur báð­um og hún þurfti mik­inn stuðn­ing.“                    

Semi fór í skóla fyr­ir börn með sér­þarf­ir en eft­ir skóla sótti hún yf­ir­leitt íþróttanám­skeið. Win­arti fylgdi henni ávallt á æf­ing­ar og hvatti hana til að tjá sig við hina krakk­ana.„Ég sagði henni aft­ur og aft­ur hvað hún væri klár og dug­leg og það efldi sjálfs­traust henn­ar smám sam­an.“

Semi fann sig sér­stak­lega vel í dansi og sprett­hlaupi. „Skyndi­lega var hún far­in að koma heim með verð­launa­pen­inga eft­ir að hafa unn­ið 100 og 200 metra hlaup. Við sáum fljótt hversu hæfi­leika­rík hún var,“ seg­ir Win­arti.

Semi er með mik­ið keppn­is­skap og þarf Win­arti oft­ar en ekki að minna hana á að halda í gleð­ina. „Íþrótt­irn­ar snú­ast ekki bara um að vinna. Fé­lags­skap­ur­inn skipt­ir gíf­ur­lega miklu máli og hún hef­ur eign­ast marga vini í íþrótt­un­um,“ seg­ir Win­arti og bros­ir.

SOS for­eldri

Vertu SOS for­eldri

SOS foreldri

SOS-for­eldri tek­ur þátt í að fram­fleyta barni sem áður var um­komu­laust og trygg­ir því fjöl­skyldu á góðu heim­ili. Barn­ið fær mennt­un og öll­um grunn­þörf­um sín­um mætt. Þú færð reglu­lega frétt­ir og mynd­ir af SOS-barn­inu þínu.

Þeg­ar þú vel­ur að styrkja „barna­þorp“ styrk­irðu öll börn­in í einu SOS barna­þorpi og færð al­menn­ar frétt­ir úr til­teknu barna­þorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barna­þorp fyr­ir 4.500 kr