Fæddur í stríði - alinn upp í kærleika

Í miðju tjaldbúða í Khan Younis, á suðurhluta Gasa, brutust út mikil gleðihljóð í gegnum daglega spennu lífsbaráttunnar. Börn klöppuðu og dönsuðu í kringum einfalt heimabakað kökustykki. Það voru skreytingar, söngvar og hlátur. Í nokkrar klukkustundir létti stríðsþunganum – því litli Karam* átti afmæli. Hann varð eins árs.
„Þegar hann kom fyrst til mín var hann svo lítill og hljóður. Ég fann fyrir óttanum hans – hann grét varla, horfði bara á heiminn með þessum stóru augum. Ég hélt honum þétt að mér og hvíslaði: ‘Þú ert öruggur núna,’“ segir SOS mamma hans, Mama Basma.
Fyrir einu ári hófst líf Karams með miklum harmi. Móðir hans slasaðist og lést við fæðingu. Hann var aðeins eins dags gamall þegar björgunarmaður kom með hann í SOS barnaþorpið í Rafah. Þar sem engir lifandi fjölskyldumeðlimir fundust fékk Karam heimili og fjölskyldu í barnaþorpinu. Í dag er Karam hraustur og djúpt tengdur konunni sem gekk honum í móðurstað.

Karam litli færir von í tjaldbúðirnar
„Auðvitað komu erfiðir dagar. Nætur þar sem hann svaf ekki, stundir þegar hann veiktist og ég sat vakandi hjá honum og bað. En hvert bros minnti mig á að blóðtengsl þurfa ekki að vera til staðar fyrir ástina að vaxa,“ segir Mama Basma.
„Það var ekki bara ég sem ól hann upp – allt þorpið lagði hönd á plóginn. Aðrir umönnunaraðilar hjálpuðu mér, eldri börnin léku við hann. Hann færði okkur öll nær hvert öðru á þann hátt sem við höfum ekki fundið lengi,“ bætir hún við.
Barnaþorpið í Rafah var jafnað við jörðu í sprengjuárás í vetur en áður hafði þorpið verið rýmt. Eftir brottflutninginn búa Karam og önnur börn í umsjá SOS Barnaþorpanna nú í tjöldum í Khan Younis. Aðstæður eru erfiðar, með takmörkuðu aðgengi að mat, vatni og læknisþjónustu. En þrátt fyrir það leggja Basma og teymi SOS sitt af mörkum til að veita börnunum festu, umhyggju og von.
Karam er eitt af 46 börnum sem SOS sér nú um í búðunum í Khan Younis. Sum þeirra voru flutt með frá Rafah, önnur eins og Karam komu til á meðan á stríðinu stóð – börn sem misstu fjölskyldur sínar eða urðu viðskila við þær í rýmingum. SOS teymið vinnur áfram við að leita að ættingjum og möguleikum á öruggri fjölskyldusameiningu, þó stríðið hafi gert það æ erfiðara.

Fyrsta orðið „Mamma“
Enn hafa engar upplýsingar borist um tilvist nokkurra ættingja Karams. Ef ástandið batnar á Gasa og raunhæfur kostur býðst, er von um að fjölskylda finnist sem geti veitt honum góða framtíð. Þangað til heldur hann áfram að vaxa og dafna í umsjá SOS Barnaþorpanna.
Hann hefur nú fengið sínar fyrstu barnatennur, stigið fyrstu skrefin – og nýlega sagði hann sitt fyrsta orð: „Mamma.“
Á afmælisdeginum sínum, í lok apríl, var Karam fagnað af öllum í tjaldbúðunum. Basma skipulagði veisluna á eigin kostnað – keypti skreytingar, útbjó sérstakan mat og klæddi hann í nýjan fatnað sem hún lét sauma sérstaklega fyrir daginn.
„Fyrsta afmælið hans var eins og hátíð. Við dönsuðum, elduðum saman og sungum bara fyrir hann. ‘Þetta barn ber með sér anda vonarinnar.’ Og í raun fannst okkur við vera að fagna ekki bara lífi hans – heldur líka styrk samfélagsins okkar.“
Karam* er skáldað nafn af persónuverndarástæðum.
SOS foreldri barna á Gaza
SOS foreldri barna á Gaza

Sem SOS foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur þorpsins svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem eru á framfæri barnaþorpsins og fer þeim nú fjölgandi.