Hafdís fundin: „Draumur sem mér datt aldrei í hug að myndi rætast“

Við auglýstum í vikunni eftir konu að nafni Hafdís eftir að fyrrverandi styrktarbarn hennar á Indlandi hafði samband við okkur í leit að henni. Eftir langa og árangurslausa leit að Hafdísi brugðum við á það ráð að auglýsa eftir henni á Facebook-síðu SOS.
Í ljós kom að ástæðan fyrir því hve erfiðlega gekk að leita að „Hafdísi“ er sú að það er millinafn hennar sem hún þó kýs að nota sem aðalnafn. Skemmst er frá því að segja að Hafdís er nú komin í leitirnar og hún varð himinlifandi þegar hún heyrði að fyrrverandi styrktarbarn hennar væri á leið til landsins.
Hafdís ræddi við Mbl.is um leitina miklu. Hún lýsir því hvernig hún varð rækilega hissa þegar hún fékk fregnir af því að Ambika, barnið sem hún styrkti um árabil, væri að leita að henni. Hér áður fyrr lét Hafdís sig dreyma um að heimsækja hana til Indlands, en hafði ekki tök á því. Hún gerði sér engar vonir um að heyra frá Ambiku aftur.

Brá alveg svakalega
Hafdísi varð ekki vör við auglýsingarnar frá SOS vegna þess að hún hefur ekki verið virk á netinu í lengri tíma. Hún segir fundinn með Ambiku, sem nú stendur til, vera henni afar kærkominn.
„Mér brá alveg svakalega. Ég var mjög hissa og varð svo undrandi, af því að það er það langt síðan ég hætti að styrkja hana og þá slitnaði sambandið. Ég þurfti að hætta stuðningnum eftir að ég lenti í alvarlegu slysi,“ segir Hafdís. Hún útskýrir að slysið hafi haft víðtækar afleiðingar, meðal annars að hún þurfti að hætta að vinna og þar með einnig stuðningi sínum við Ambiku. „Ég var að deyja úr samviskubiti,“ bætir hún við.
Á sínum tíma ákvað Hafdís að gerast SOS-foreldri vegna þess að þorpin bjóða upp á fjölskylduumhverfi. „Ég var búin að ganga með þetta í maganum í mörg ár þegar ég lét loksins verða af því árið 1993. Það er bara eins og ég hafi átt að fá hana Ambiku.“

Deila sama afmælisdegi
Hafdís á ekki börn sjálf en hafði starfað við barnagæslu. Þegar hún fékk tilkynningu um að hún væri farin að styrkja níu mánaða stúlku, fædda árið 1992, rifjar hún upp að þær deili sama afmælisdegi, sem henni fannst vera táknrænt. „Þegar ég fékk fyrstu myndina fannst mér hún fallegasta barn í heimi.“
Fjarlægðin á milli þeirra skipti ekki miklu máli í hennar huga. Hafdís skrifaði reglulega bréf og kort til Ambiku og sendi stundum litlar gjafir. „Ég fann ekkert fyrir fjarlægðinni því SOS-mamman hennar Ambiku var svo yndisleg og skrifaði mér bréf til baka.“
Hún man sérstaklega eftir fyrstu samskiptunum. „Fyrst um sinn þá svaraði SOS mamman hennar Ambiku með bréfum til baka. Svo þegar Ambika varð eldri skrifaði mamman mér með því sem stelpan sagði, fyrir hönd Ambiku. Svo fór ég að fá teikningar sem hún hafði teiknað.“

Fór í læknisfræði
Það að sjá að Ambika hefur komið sér vel fyrir í lífinu er Hafdísi mikils virði. „Ég veit að hún var komin úr þorpinu til Delí í háskóla og ætlaði að fara að læra læknisfræði og hjartað í mér stækkaði.“
Hafdís segist hafa verið með hugann hjá henni árum saman og rifjar upp að hún hafi einu sinni séð frétt um indverska konu í læknisfræði og fengið sting í hjartað, af ótta við að það gæti verið Ambika í erfiðum kringumstæðum. „Sem betur fer var það ekki.“
Að fá nú tækifæri til að hitta Ambiku í eigin persónu er stór stund. „Úff, það þýðir bara allt. Þetta er bara draumur sem mér datt aldrei í hug að myndi rætast.“

Langaði með Ólafi Ragnari til Indlands
Hún minnist þess að hafa lesið í fréttabréfum SOS um að aðrir styrktaraðilar hafi heimsótt börnin sín, en að hún hafi aldrei haft tök á því.
„Ef maður getur orðið veikur af löngun, þá var ég mjög nálægt því einu sinni,“ segir hún og nefnir ferð forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, til Indlands þar sem almenningi var boðið að kaupa sér sæti í flugið. „Þau ætluðu einmitt að heimsækja barnaþorpið í Greenfields. Ég hafði engin fjárráð til þess þá.“
Hafdís gerði sér ekki vonir um að heyra aftur frá Ambiku. „En nú hefur hún sótt sér menntun og líklega komin í góða vinnu og hefur efni á að ferðast.“
Aðspurð hvort hún myndi mæla með því að aðrir tækju þátt í verkefnum á vegum SOS, svarar hún: „Alveg hiklaust og ég hef gert það. Þetta gefur manni alveg svakalega mikið.“
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri

SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.