Mæðgur framfleyta fjölskyldunni með kertaframleiðslu
Santhana Mary býr í litlu þorpi nálægt Nagapattinam á Indlandi. Hún er í 6. bekk og stundum hjálpar hún mömmu sinni í vinnunni. Mamma hennar, Lilly Mary, vinnur við það að búa til kerti sem kirkjur í Nagapattinam kaupa af henni. Hún rekur líka litla búð á heimili sínu.
Þær mæðgur tóku vel á móti okkur til að sýna Íslendingum hvernig þær fara að því að gera kertin. Sögu þeirra má sjá í þessu stutta myndbandi.
Viðkvæm fjölskylda sem þurfti bara smá aðstoð
Það er stutt síðan fjölskylda Santhönu var svo illa stödd fjárhagslega að mamma hennar gat ekki séð fyrir börnunum sínum. Eins og svo algengt er í slíkum aðstæðum var fjölskyldan í raunverulegri hættu á að leysast upp því að börnin fengu ekki grunþörfum sínum mætt. Því fylgir yfirleitt að skólaganga barnanna er í lausu lofti með tilheyrandi óvissu um framtíð þeirra.
Þá vantar oft ekki nema smá herslumun til að láta hjólin fara að snúast því ekki skortir þær mæðgur framtakssemina. Lilly Mary fékk aðstoð frá SOS Barnaþorpunum til að hefja kertaframleiðslu svo fjölskyldan gæti aflað tekna og staðið á eigin fótum.
Mæðgurnar Santhana Mary og Lilly Mary í Nagapattinam í september 2025.
Hvað ungur nemur, gamall temur
Santhana Mary safnar þurru spreki sem þær mæðgur nota til að kveikja eld. Þær bræða litlar hvítar vaxflögur í járnpotti og þegar vaxið er bráðið þá bæta þær út í lit sem þær vilja hafa á kertunum. Það getur verið erfitt að stýra viðareldinum en mamman Lilly Mary hefur mikla reynslu og er mjög góð í því. Hún kennir dóttur sinni handbrögðin. Santhana Mary er smeyk við heita vaxið en mamma hennar leiðbeinir henni.
Þegar vaxið er tilbúið hella þær því í málmmót sem mamma hennar hefur sett saman. Kveikurinn sem fer í kertin er þræddur í mótið. Það er mjög mikilvægt að skrúfa mótið fast saman svo vaxið leki ekki út. Til öryggis setja þær málmmótið á bakka sem grípur umframvaxið, svo ekkert vax fari til spillis.
Santhana hreinsar vaxið af bakkanum til að nýta það aftur.
Þegar vaxið er komið í mótið fer mótið í kalt vatn, þá harðna kertin hraðar. Þegar kertin eru tilbúin skera þær kveikana og taka kertin varlega úr mótinu. Það þarf að rúlla kertunum saman áður en þau fara í pakkninguna, svo þau festist ekki saman. Það fara tíu kerti í hvern pakka.
Santhana Mary þarf fyrst að rúlla kertunum saman svo þau festist ekki hvert við annað.
Fjölskyldan stendur á eigin fótum
Það eru ekki margar fjölskyldur í Nagapattinam sem búa til kerti. Þess vegna má finna kerti sem mæðgurnar Lilly Mary og Santhana Mary hafa búið til í flestum kirkjum í Nagapattinam. SOS Barnaþorpin hjálpuðu fjölskyldu Santhönu Mary að hefja kertaframleiðsluna. Nú getur fjölskyldan staðið á eigin fótum. Hvert kerti sem þær búa til ber með sér bænir þeirra um birtu á heimili og í hjörtum þeirra sem á þeim kveikja.
Fjölskylduefling SOS
Fjölskylda Santhana Mary er þátttakandi í fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna. Markmið fjölskyldueflingar SOS er að forða börnum frá aðskilnaði við illa stadda foreldra sína og hjálpa foreldrum að mæta þörfum barnanna. Aðstoðin er einstaklingsbundin og getur verið í formi menntunar, heilsugæslu, ráðgjafar, barnagæslu og annarra þátta sem hjálpa þeim að yfirstíga erfiðleika og lifa betra lífi – sem fjölskylda.
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.