SOS sög­ur 15.september 2021

Frá von­leysi til von­ar

Frá vonleysi til vonar

Hiwot er 41 árs ein­stæð hús­móð­ir í bæn­um Iteya í Eþí­óp­íu sem gat ekki afl­að nægra tekna til að fram­fleyta börn­un­um sín­um. Stað­an var svo slæm fyr­ir rúm­um þrem­ur árum að það virt­ist stefna í að­skiln­að við börn­in.

„Ég þén­aði 700 Birr mán­uði (2.000 krón­ur) á sama tíma og verð­bólg­an hækk­aði stans­laust. Ég gat ekki lagt neitt til hlið­ar og þurfti að sinna erf­ið­is­vinnu á nokkr­um heim­il­um svo ég gæti gef­ið börn­un­um að borða. Þetta reyndi veru­lega á okk­ur," seg­ir Hiwot sem átti þó fljót­lega eft­ir að líta bjart­ari tíma.

Starfsfólk SOS fyrir utan skrifstofuna í Iteya. Starfsfólk SOS fyrir utan skrifstofuna í Iteya.

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi voru um þetta leyti að setja á lagg­irn­ar fjöl­skyldu­efl­ingu í bæn­um og ná­grenni hans, svo­köll­uðu Tulle Moye svæði. Fjöl­skyldu­efl­ing er þró­un­ar­að­stoð sem SOS Barna­þorp­in starf­rækja á 620 svæð­um um heim all­an. Verk­efn­ið sem SOS á Ís­landi fjár­magn­ar er í Tullu Moye.

Þar hjálp­um við 560 for­eldr­um og 1562 börn­um þeirra að kom­ast upp fyr­ir fá­tækt­ar­mörk með því mark­miði að þess­ar barna­fjöl­skyld­ur geti stað­ið á eig­in fót­um. Þannig drög­um við úr hætt­unni á að­skiln­aði og efl­um for­eldr­ana svo þeir geti hugs­að um börn­in og þau stund­að nám.

Ástandið lagðist mjög þungt á okkur og okkur fannst ekki lengur tilgangur með lífinu. Hiwot

Það var þá sem Hiwot fékk inn­göngu í fjöl­skyldu­efl­ing­una og varð það vendipunkt­ur í lífi fjöl­skyld­unn­ar.

„Síð­an ég gekk til liðs við fjöl­skyldu­efl­ing­una fékk ég þjálf­un í með­ferð pen­inga og upp­eld­is­hæfni og ég lærði líka á rétt­indi mín til heil­brigð­is­þjón­ustu. Þar að auki fékk ég fjár­hags­leg­an stuðn­ing til að hefja minn eig­in rekst­ur til að tryggja af­komu og líka styrk fyr­ir fæði og skóla­styrk fyr­ir börn­in."

Hiwot tók að sér ýmis erfiðisstörf fyrir mörg heimili til að geta séð fyrir börnunum. Hiwot tók að sér ýmis erfiðisstörf fyrir mörg heimili til að geta séð fyrir börnunum.

Hiwot gekk líka til liðs við lít­ið lána­sam­fé­lag á svæð­inu sem veit­ir henni mögu­leika á vaxta­laus­um lán­um og að­ild að sam­fé­lags­leg­um ör­ygg­is­sjóð til að mæta óvænt­um út­gjöld­um. Með þessu móti gat hún bak­að hinar hefð­bundn­um eþí­ópísku pönnu­kök­ur „injera" sem hún seldi við þjóð­veg­inn. Í fram­hald­inu fór hún að baka og selja pönnu­kök­ur fyr­ir hót­el sem keypti fram­leiðsl­una af henni.

Ég gat meira að segja ráðist í framkvæmdir á heimilinu og keypt húsgögn. Þetta var alveg óhugsandi. Hiwot

Út­skrif­uð úr fjöl­skyldu­efl­ing­unni

„Ég gat þá byrj­að að spara pen­ing og nú á ég 24 þús­und Birr (66 þús­und krón­ur) á reikn­ingn­um mín­um. Ég gat meira að segja ráð­ist í fram­kvæmd­ir á heim­il­inu og keypt hús­gögn. Þetta var al­veg óhugs­andi mögu­leiki fyr­ir fjöl­skyld­una áður. Ég er í mik­illi þakk­ar­skuld við SOS Barna­þorp­in," seg­ir Hiwot sem út­skrif­að­ist úr fjöl­skyldu­efl­ing­unni nú á dög­un­um ásamt 50 öðr­um fjöl­skyld­um. Þetta eru fyrstu fjöl­skyld­urn­ar sem út­skrif­ast úr verk­efn­inu síð­an það hófst árið 2018.

Hiwot bakar nú injera pönnukökur sem hótel kaupir af henni og það tryggir henni tekjur. Hiwot bakar nú injera pönnukökur sem hótel kaupir af henni og það tryggir henni tekjur.

Núna þén­ar Hiwot 5.000 Birr á mán­uði (14.000 kr.) og get­ur lagt til hlið­ar í sparn­að og borg­að í ör­ygg­is­sjóð­inn. Hún get­ur séð fyr­ir grunn­þörf­um barn­anna, gef­ið þeim nóg að borða og keypt fyr­ir þau skóla­bæk­ur.

„Ég á varla til orð til að lýsa þakk­læti mínu fyr­ir SOS Barna­þorp­in sem hafa stutt mig svo ég geti vernd­að börn­in mín. Ég trúi því að líf­ið mitt verði enn betra nú þeg­ar ég hef út­skrif­ast úr verk­efn­inu. Nú get ég stað­ið á eig­in fót­um og vernd­að börn­in mín og séð fyr­ir þeim. Takk SOS, enn og aft­ur," seg­ir Hiwot að lok­um og ham­ingj­an geisl­ar af henni.

SOS fjöl­skyldu­vin­ur

SOS fjöl­skyldu­vin­ur

SOS fjölskylduvinur

SOS-fjöl­skyldu­vin­ir styrkja fjöl­skyldu­efl­ingu SOS. Sem SOS-fjöl­skyldu­vin­ur kem­urðu í veg fyr­ir að börn verði van­rækt og yf­ir­gef­in. Í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS tök­um við fyrstu skref­in með fjöl­skyld­um út úr sára­fá­tækt svo þær get­ið stað­ið á eig­in fót­um og veitt börn­un­um bjarta fram­tíð. Þú ákveð­ur styrkt­ar­upp­hæð­ina og færð reglu­lega upp­ýs­inga­póst um verk­efn­in sem við fjár­mögn­um.

Mán­að­ar­legt fram­lag
1.500 kr 2.500 kr 5.000 kr 7.500 kr