SOS sög­ur 27.apríl 2021

Fékk lyfja­seið hjá töfra­lækni og missti ann­an fót­inn

Fékk lyfjaseið hjá töfralækni og missti annan fótinn

Ahi­med Bobi er 47 ára tveggja barna heim­il­is­fað­ir í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS í Eþí­óp­íu. Hann hef­ur ekki alltaf ver­ið til stað­ar fyr­ir börn­in sín og eig­in­konu. Hann glímdi við þung­lyndi vegna fötl­un­ar, ánetj­að­ist fíkni­efn­um og átti það til að láta sig hverfa í marg­ar vik­ur. Í við­tali við frétta­blað SOS á Ís­landi seg­ir Ahi­med frá því þeg­ar hann missti ann­an fót­inn á barns­aldri eft­ir að töfra­lækn­ir spraut­aði hann með eitr­uð­um lyfja­seið. Mynd­band með við­tal­inu við Ahi­med má sjá hér fyr­ir neð­an.

Fékk sýk­ingu eft­ir lyfja­seið töfra­lækn­is

Ahi­med, eig­in­kona hans Fatuma, 28 ára, og tvö börn, búa í Teromoye, strjál­býlu bæj­ar­fé­lagi þar sem SOS á Ís­landi starf­ræk­ir fjöl­skyldu­efl­ingu í Eþí­óp­íu. Fjöl­skyld­an var við það að leys­ast upp þeg­ar SOS kom til sög­unn­ar. „Við lifð­um í sára­fá­tækt, átt­um ekki fyr­ir nauð­þurft­um og gát­um ekki sent börn­in í skóla. Þess vegna sótti ég um að kom­ast í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS,” sagði Ahi­med sem áður átti til að skilja alla ábyrgð eft­ir á herð­um eig­in­konu sinn­ar.

Ahi­med lenti í af­drifa­ríkri lífs­reynslu þeg­ar hann var mjög ung­ur að árum. „Ég veit ekki ná­kvæm­lega hvernig ég missti fót­inn. Ég veit bara að ég veikt­ist og töfra­lækn­ir bland­aði eitr­að­an lyfja­seið sem hann spraut­aði í mig. Þetta var auð­vit­að ekki al­vöru lækn­ir og alls ekki við­ur­kennt lyf sem ég fékk. Þetta olli sýk­ingu í fæt­in­um og að lok­um þurfti að skera hann af.”

Í stað þess að vorkenna sjálfum mér og gráta fyrir framan börnin, þá valdi ég að gera það annarsstaðar. Ahimed

Taldi sig gagns­laus­an vegna fötl­un­ar

Eft­ir að Ahi­med og Fatuma stofn­uðu fjöl­skyldu jókst ábyrgð­in á heim­il­is­föð­ur­inn sem þoldi álag­ið illa. Hann átti erfitt með að sætta sig við fötl­un­ina og hafði litla trú á sjálf­um sér. „Ég var full­ur sjálfs­vorkun­ar vegna fötl­un­ar minn­ar. Mér fannst ég ekk­ert hafa fram að færa fyr­ir fjöl­skyld­una, ver­andi ein­fætt­ur. Ég átti það til að flýja og skilja fjöl­skyld­una eft­ir."

Lét sig hverfa í dóp­ið

Fatuma, eig­in­kona hans, var þá ein eft­ir með börn­in auk þess sem hún vann til að sjá fyr­ir þeim. Hún tók að sér hin ýmsu störf eins og að safna eldi­viði til að selja á með­an Ahi­med var víðs fjarri í vímu.  „Ég átti það til að láta mig hverfa, oft leng­ur einn í einn mán­uð. Börn­in mín sáu mig ekk­ert á þeim tíma. Ég dvaldi þá í bæ hérna skammt hjá og varð háð­ur fíkni­efn­inu khat. Ég hugs­aði ekki skýrt og skildi alla ábyrgð eft­ir á kon­unni minni. Mér leið illa að vera hérna því mér fannst ég ekki geta gert neitt. Þannig að í stað þess að vor­kenna sjálf­um mér og gráta fyr­ir fram­an börn­in, þá valdi ég að gera það ann­ars­stað­ar.”

Þurfti bara að­stoð

Það er ljóst að al­ger hug­ar­fars­breyt­ing hef­ur orð­ið hjá Ahi­med. Hann þurfti eft­ir allt sam­an bara ör­litla að­stoð við að koma sér á rétt­an kjöl. „Núna þeg­ar SOS hef­ur hjálp­að okk­ur að verða sjálf­bær með naut­grip­um og land­rækt þá geng­ur allt bet­ur og mér líð­ur mik­ið bet­ur. Við höf­um náð að eign­ast dá­lít­inn sjóð og við get­um séð fyr­ir okk­ur. Ég er hætt­ur að nota fíkni­efni og hér er mitt hlut­verk. Hér er nóg að gera og hér vil ég gera. Ég er betri mað­ur í dag.”

Viðtal og myndir: Hans St. Bjarnason

Fjölskylduefling SOS í Eþíópíu er styrkt af utanríkisráðuneytinu og SOS-fjölskylduvinum.

SOS for­eldri

Vertu SOS for­eldri

SOS foreldri

SOS-for­eldri tek­ur þátt í að fram­fleyta barni sem áður var um­komu­laust og trygg­ir því fjöl­skyldu á góðu heim­ili. Barn­ið fær mennt­un og öll­um grunn­þörf­um sín­um mætt. Þú færð reglu­lega frétt­ir og mynd­ir af SOS-barn­inu þínu.

Þeg­ar þú vel­ur að styrkja „barna­þorp“ styrk­irðu öll börn­in í einu SOS barna­þorpi og færð al­menn­ar frétt­ir úr til­teknu barna­þorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barna­þorp fyr­ir 4.500 kr