
Stuðningur fyrirtækja
Betri heim fyrir öll börn
Það eru margar leiðir fyrir fyrirtæki til að styðja við starf SOS Barnaþorpanna – og við finnum þá leið sem hentar hverju fyrirtæki best.
Hvort sem um er að ræða einskiptisframlag, langtímasamstarf eða eitthvað þar á milli, erum við tilbúin að koma til móts við ykkar áherslur og þarfir. Fyrirtæki geta lagt sitt af mörkum á einfaldan hátt, eða tekið virkari þátt í því hvernig stuðningurinn nýtist og haft skýrari tengingu við verkefni og áhrif SOS.
Við mætum fyrirtækjum þar sem þau eru og finnum saman leið til að hafa jákvæð áhrif á líf barna og fjölskyldna.