Mikill árangur á skömmum tíma
Óvenju mikill árangur hefur náðst á skömmum tíma í Fjölskyldueflingarverkefni sem SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna í Eþíópíu. Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi og Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi, voru í Eþíópíu dagana 1. til 6. febrúar sl. og gerðu úttekt á þróun verkefnisins sem er styrkt af Utanríkisráðuneytinu og SOS-fjölskylduvinum hér á landi.
Verkefnið felst í að styðja 566 barnafjölskyldur í sárafátækt til sjálfbærni, m.a. með mataraðstoð, bættri heilbrigðisþjónustu, stuðningi við menntun, uppeldisþjálfun, betra aðgengi að vatni, fjármálaráðgjöf og aðgengi að lánum á lágum vöxtum svo dæmi séu tekin. Lánin eru veitt fjölskyldunum til að efla eigin atvinnurekstur svo sem til kaupa á búnaði og hráefni til framleiðslu á matvöru til sölu. Þá er margt óupptalið.
Verkefnið hófst 1. janúar 2018 og stendur yfir til 31. desember 2021. Umræddar fjöskyldur eru í smábænum Iteya og þorpinu Tero Moye sem er í 20 km fjarlægð. Verkefnið er kennt við eldfjallið Tullumoye sem þýðir „Fjallsgígur“ á íslensku og er í nágrenni Tero Moye.
Ragnar framkvæmdastjóri SOS á Íslandi vígði vatnstankinn opinberlega í tilefni af heimsókninni. Við hlið Ragnars á meðfylgjandi mynd er Sahlemariam Abebe, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Eþíópíu.
Loksins auðvelt að fá vatn
Skólasókn barnanna hefur rokið upp, stofnaðir voru forskólar fyrir 4-6 ára börn, dregið hefur úr vannæringu barna, fjölskyldurnar eru mun meðvitaðri um mikilvægi menntunar, kynjajafnfrétti og meðferð fjármuna svo dæmi séu tekin. Þá hefur verið byggður vatnstankur og vatnsleiðslur lagðar til þorpsins Teremoye. Þar þurfti fólk áður að leggja á sig margra klukkustunda göngu eftir vatni en nú tekur aðeins nokkrar mínútur að bera sig eftir vatninu sem rennur í fjórar vatnsstöðvar í þorpinu.
„Það er ljóst að vel er haldið utan um verkefnið af stjórnanda þess á staðnum og þakklæti fólksins er ótvírætt. Við heimsóttum nokkrar af þessum fjölskyldum, ræddum við þær og kynntum okkur bágbornar aðstæður þeirrar. Það fór ekki á milli mála að fólkið er þakklátt okkur Íslendingum fyrir aðstoðina. Þessi heimsókn staðfesti fyrir okkur að hjálp okkar hefur borið mikinn árangur og eftir að gera áfram.“ segir Hans Steinar, upplýsingafulltrúi.
Nýlegar fréttir
Skrifstofan lokuð tímabundið en starfsemi í gangi
Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Hamraborg í Kópavogi er lokuð tímabundið vegna reykskemmda. Starfsemi okkar fer þó fram í fjarvinnu og er hægt að hafa samband í síma og í tölvupósti.
39 þolendur fengu stuðning og sex gerendur voru kærðir
Verkefni SOS Barnaþorpanna í Tógó sem fjármagnað er af Íslendingum, „Efling baráttunnar gegn kynferðislegri misnotkun á börnum í Ogou-héraði“, hefur skilað áþreifanlegum árangri. 39 þolendur fengu stu...