Fréttayfirlit 4. mars 2019

Faldi óléttuna til að geta verið í skóla

Besta leiðin til að koma í veg fyrir aðskilnað barna við foreldra þeirra er að hjálpa þeim og foreldrunum áður en til aðskilnaðar kemur. Þess vegna settu SOS Barnaþorpin á laggirnar Fjölskyldueflingu.

GERAST FJÖLSKYLDUVINUR

*Babette er 18 ára stúlka í Sambíu sem missti foreldra sína þegar hún var lítil og eftir að amma hennar dó fyrir fjórum árum var hún ein á báti, 14 ára. Þegar hún varð svo barnshafandi 17 ára hrundi heimur hennar. Babette ákvað að leyna óléttunni því hún óttaðist að þurfa að hætta í skólanum.

„Ég var svo örvæntingarfull. Hvernig átti ég að geta verið áfram í skóla og hugsað um ungabarn á sama tíma? Ég vissi ekkert hvernig á að hugsa um barn,“ segir Babette með þriggja mánaða gamlan son sinn Noah. Hún veit að menntun er hennar eina leið út úr fátæktinni.

Fjölskylduefling SOS kom til bjargarBabette með Noah litla

Babette ákvað að bíta á jaxlinn þegar Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna tók þessa ungu fjölskyldu undir sinn verndarvæng. Hún fann til ábyrgðar gagnvart frænku sinni og tveggja ára syni hennar sem höfðu flutt inn á heimilið eftir að amman dó. Frænkan passar *Noah á meðan á meðan Babette fer í skólann.

Húsið var í niðurníðslu en með tilkomu Fjölskyldueflingarinnar hefur SOS nú bætt aðstæður fjölskuldunnar til muna. Sett hafa verið upp sólarorkuljós inni á heimilinu svo Babette geti gert heimalærdóm sinn á kvöldin. Þar að auki hefur verið sett læsanleg hurð á húsið, gler í gluggana og þak á húsið sem áður lak í rigningarveðri.

Nám í stað ótta og óvissu

„Ég ligg oft andvaka á næturnar og hugsa um hvernig lífið mitt verður. Ég veit að ég verð að leggja hart að mér í náminu svo það verði eitthvað úr mér í framtíðinni. Þá get ég veitt syni mínum gott líf í stað þess að lifa í ótta og óvissu,“ segir Babette sem ætlar að verða blaðamaður.

SKRÁNING FJÖLSKYLDUVINA

Saga Babette gefur góða innsýn í það hvernig Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna hjálpar sárafátækum barnafjölskyldum. Samtökin eru með 574 slík verkefni í gangi um allan heim sem eru sérsniðin að aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. SOS á Íslandi fjármagnar þrjú þessara verkefna, í Eþíópíu, Perú og Filippseyjum.

*Raunverulegu nafni breytt

Yfir hálf milljón skjólstæðinga

Skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna á heimsvísu eru alls 505,800 talsins í yfir 98 þúsund fjölskyldum.

Hægt er að verða SOS-fjölskylduvinur með því að skrá sig fyrir mánaðarlegu framlagi að eigin vali. Fjölskylduvinir fá reglulega fréttir af þeim fjölskyldum sem SOS á Íslandi hjálpa.

Heimsmarkmiðin.jpg

Fjölskylduefling SOS nær til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og uppfyllir markmið númer 1, 2, 3, 4, 5 og 6. SOS Barnaþorpin uppfylla heimsmarkmið númer 1, 4, 8, 10 og 16 að fullu og markmið númer 3,5 og 17 að hluta.

Nýlegar fréttir

SOS blaðið 2024 komið út
28. nóv. 2024 Almennar fréttir

SOS blaðið 2024 komið út

SOS-blað ársins er komið út og er það aðgengilegt öllum rafrænt hér á vefsíðu okkar. Í blaðinu er viðtal við hina tíbetsku Sonam Gangsang sem ólst upp í SOS barnaþorpi á Indlandi og heimsótti fyrrvera...

Fulltrúi íslenskra yfirvalda sat viðburð SOS hjá Sameinuðu þjóðunum
22. nóv. 2024 Almennar fréttir

Fulltrúi íslenskra yfirvalda sat viðburð SOS hjá Sameinuðu þjóðunum

Alþjóðlegri herferð SOS Barnaþorpanna, „Stappað fyrir friði“, var hrundið af stað á þriðjudaginn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í aðdraganda 35 ára afmælis Barnasáttmálans. Íslensk börn ...