Frétta­yf­ir­lit 16. janú­ar 2024

360 barna­fjöl­skyld­ur í Eþí­óp­íu laus­ar úr viðj­um sára­fá­tækt­ar

360 barnafjölskyldur í Eþíópíu lausar úr viðjum sárafátæktar


Þau tíma­mót urðu nú um ára­mót­in að verk­efna­lok urðu í Tulu-Moye fjöl­skyldu­efl­ingu okk­ar í Eþí­óp­íu sem hófst árið 2018. Ár­ang­ur­inn var fram­ar von­um á þess­um fimm árum og tókst að losa 360 barna­fjöl­skyld­ur úr viðj­um sára­fá­tækt­ar, alls 1130 börn og ung­menni auk for­eldra þeirra.

Við tók­um fyrstu skref­in með þess­um fjöl­skyld­um út úr sára­fá­tækt með þeim efl­andi að­ferð­um sem hafa reynst vel í sam­bæri­leg­um verk­efn­um víða um heim. For­eldr­arn­ir í þess­um fjöl­skyld­um eru nú farn­ir að afla tekna sem þeir gerðu ekki áður, standa á eig­in fót­um og geta veitt börn­un­um bjarta fram­tíð.

Tulu-Moye fjöl­skyldu­efl­ing­in var starf­rækt í smá­bæn­um Iteya sem ligg­ur við þjóð­veg en náði einnig til fjöl­skyldna í Tero Moye sem er sveit í ná­grenn­inu.

Zemzen ásamt eiginmanni sínum og börnum. Zemzen rekur smáverslun og hefur af því tekjur f yrir fjölskylduna. Zemzen ásamt eiginmanni sínum og börnum. Zemzen rekur smáverslun og hefur af því tekjur f yrir fjölskylduna.

Verk­efn­ið fram­lengt eft­ir Covid

Alls 560 fjöl­skyld­ur voru skráð­ar í upp­hafi verk­efn­is­ins og stóðu von­ir til um að hægt yrði að út­skrifa helm­ing þeirra á verk­efna­tím­an­um sem upp­haf­lega var til þriggja ára. Hins veg­ar setti kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn stórt strik í rein­ing­inn og var ákveð­ið að fram­lengja verk­efn­ið um tvö ár eða út árið 2023.

Fram­leng­ing­in gerði gæfumun­inn og fyr­ir vik­ið tókst að rjúfa víta­hring fá­tækt­ar hjá 64% þeirra fjöl­skyldna sem hófu þátt­töku í verk­efn­inu. „Þessi ár­ang­ur er tals­vert meiri en í öðr­um verk­efn­um okk­ar í fjöl­skyldu­efl­ingu,“ seg­ir Tadesse Abe­be hjá SOS Barna­þorp­un­um í Eþí­óp­íu.

Kostn­að­ur við Tulu-Moye fjöl­skyldu­efl­ing­una er að stærst­um hluta fjár­magn­að­ur af ut­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Fram­lög­um SOS-fjöl­skyldu­vina er einnig var­ið í fjár­mögn­un verk­efna okk­ar í fjöl­skyldu­efl­ingu. SOS á Ís­landi fjár­magn­ar einnig slík verk­efni í Mala­ví og Rú­anda.

ATH! Ranglega var sagt í frétt okk­ar í júní 2023 að 560 fjölskyldur hefðu útskrifast úr fjölskyldueflingunni. Það hefur nú verið leiðrétt.

Hanna er 29 ára ein­stæð tveggja barna móð­ir. Hún rek­ur ásamt tveim­ur öðr­um ­mæðr­um smá­sjoppu og sal­arn­is­að­stöðu á um­ferð­ar­mið­stöð bæj­ar­ins Iteya. Hanna er 29 ára ein­stæð tveggja barna móð­ir. Hún rek­ur ásamt tveim­ur öðr­um ­mæðr­um smá­sjoppu og sal­arn­is­að­stöðu á um­ferð­ar­mið­stöð bæj­ar­ins Iteya.

Önn­ur fjöl­skyldu­efl­ing í Eþí­óp­íu

Við lát­um ekki deig­an síga og höld­um áfram veg­ferð okk­ar í að taka fyrstu skref­in með barna­fjöl­skyld­um út úr sára­fá­tækt. Vinna er haf­in við ann­að verk­efni í Arba Minch sem er í sunn­an­verðri Eþí­óp­íu. Þar mun­um við styðja við 635 börn og for­eldra þeirra eða forr­ráða­fólk og mun fjöl­skyldu­efl­ing­in þar hafa óbein já­kvæð áhrif á 11 þús­und íbúa á svæð­inu.

Verkefnið er til þriggja ára og er áætlaður kostnaður þess rúmar 90 milljónir króna. Sem fyrr verður stærstur hluti hans fjármagnaður af utanríkisráðuneytinu auk framlaga SOS-fjölskylduvina.

Hans Steinar upplýsingafulltrúi ásamt starfsfólki verkefnisins í Iteya. Hans Steinar upplýsingafulltrúi ásamt starfsfólki verkefnisins í Iteya.

Heim­ilda­mynd­in „Föst í fá­tækt“

Árið 2017 fram­leiddu SOS Barna­þorp­in heim­ilda­mynd um fjöl­skyldu­efl­ing­una í Tulu-Moye. Mynd­in fær­ir okk­ur inn­sýn í líf fólks­ins í Iteya og Tero-Moye og er hægt að sjá hana á YouTu­be rás okk­ar.

SOS fjöl­skyldu­vin­ur

SOS fjöl­skyldu­vin­ur

SOS fjölskylduvinur

SOS-fjöl­skyldu­vin­ir styrkja fjöl­skyldu­efl­ingu SOS. Sem SOS-fjöl­skyldu­vin­ur kem­urðu í veg fyr­ir að börn verði van­rækt og yf­ir­gef­in. Í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS tök­um við fyrstu skref­in með fjöl­skyld­um út úr sára­fá­tækt svo þær get­ið stað­ið á eig­in fót­um og veitt börn­un­um bjarta fram­tíð. Þú ákveð­ur styrkt­ar­upp­hæð­ina og færð reglu­lega upp­ýs­inga­póst um verk­efn­in sem við fjár­mögn­um.

Mán­að­ar­legt fram­lag
1.500 kr 2.500 kr 5.000 kr 7.500 kr