Ungir og aldnir láta gott af sér leiða
Þrjár duglegar og hjartagóðar ungar dömur í Breiðholti tóku sig til á dögunum og söfnuðu pening fyrir SOS Barnaþorpin. Embla Marín Freysdóttir, Sara Karen Sigurðardóttir og Guðný Hrönn Sigurðardóttir gengu í hús í götu einni í Hólahverfi og söfnuðu 2.696 krónum sem þær hafa afhent okkur. Peningurinn fer í verkefni sem við fjármögnum í Eþíópíu þar sem við hjálpum sárafátækum barnafjölskyldum í gegnum Fjölskyldueflingu SOS. Þessi upphæð dugar einmitt rúmlega fyrir einu WADI vatnshreinsitæki sem útvegum þessum fjölskyldum.
Vatnshreinstækið nemur styrk UV sólargeislanna sem drepa sýkla og örverur. Ef plastflaska full af vatni er látin standa úti í sólinni og tækið við hliðina á, gefur broskarl til kynna að vatnið sé orðið drykkjarhæft. Svo lengi sem fýlukarlinn er á tækinu, er vatnið enn ódrykkjarhæft. Með þessu móti er hægt að sporna við sjúkdómum sem orsakast vegna skítugs drykkjarvatns.
Tækið er í sölu í vefverslun okkar.
Við þökkum Emblu, Söru og Guðnýju innilega fyrir þetta frábæra framtak.
Kom með peningabox látinnar eiginkonu sinnar
Þá kom til okkar á skrifstofuna eldri maður með þetta litla málmbox fullt af smápeningum sem konan hans átti. Hún er nú látin en hann vildi færa okkur boxið því hún hafði styrkt SOS Barnaþorpin. Þarna hlýnaði okkur um hjartarætur.
Nýlegar fréttir
Íslenskt verkefni nær til 1200 barna í 300 fjölskyldum í Malaví
Nú í vikunni hófst formlega nýtt verkefni í fjölskyldueflingu í Malaví sem er styrkt af Íslendingum með stuðningi SOS fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins. Verkefnið er til þriggja ára og mun ná t...
Fjögur ár af stríði í Úkraínu: Börn bíða enn eftir öryggi og stöðugleika
Þegar Úkraína minnist fjögurra ára frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa halda börn víðs vegar um landið áfram að alast upp við loftárásarviðvaranir, flótta, rafmagnsleysi og óvissu um framtíðina. Fyri...