Fréttayfirlit 20. nóvember 2015

Jólakort SOS Barnaþorpanna



Jólakort SOS Barnaþorpanna eru komin út en um er að ræða tvö ný kort sem hönnuð eru af Maríu Möndu. Kortin heita Jólatré og eru 22,5 x 11 cm með texta. Þau eru skreytt að framan og aftan með gyllingu og umslag fylgir með. Kortin geta staðið upprétt og því tilvalin sem skraut en stykkið kostar 450 krónur.

Einnig eru SOS Barnaþorpin með eldri jólakort til sölu, meðal annars kort eftir Heklu Björk Guðmundsdóttur sem seljast á 350 krónur stykkið, Huldu Ólafsdóttur á 150 krónur stykkið og Ingibjörgu Eldon Logadóttur á 250 krónur stykkið.

Hægt er að panta kortin í vefverslun samtakanna á www.sos.is eða í síma 564-2910.  Í desember verða SOS Barnaþorpin svo með klinktilboð á gömlum jólakortum en þá verður hægt að koma við í Hamraborg 1 í Kópavogi og ná sér í falleg jólakort á mjög ódýran hátt.

Nýlegar fréttir

Ný fjölskylduefling í Malaví nær til 1200 barna í 300 fjölskyldum
26. feb. 2026 Fjölskylduefling

Ný fjölskylduefling í Malaví nær til 1200 barna í 300 fjölskyldum

Nú í vikunni hófst formlega nýtt verkefni í fjölskyldueflingu í Malaví sem er styrkt af Íslendingum með stuðningi SOS fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins. Verkefnið er til þriggja ára og mun ná t...

Fjögur ár af stríði í Úkraínu: Börn bíða enn eftir öryggi og stöðugleika
24. feb. 2026 Almennar fréttir

Fjögur ár af stríði í Úkraínu: Börn bíða enn eftir öryggi og stöðugleika

Þegar Úkraína minnist fjögurra ára frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa halda börn víðs vegar um landið áfram að alast upp við loftárásarviðvaranir, flótta, rafmagnsleysi og óvissu um framtíðina. Fyri...