Frétta­yf­ir­lit 18. des­em­ber 2020

Ís­lenskt verk­efni í Tógó ber ár­ang­ur

Íslenskt verkefni í Tógó ber árangur


Ís­lenskt verk­efni SOS Barna­þorp­anna sem mið­ar að því að draga úr kyn­ferð­is­legri misneyt­ingu gegn börn­um í Tógó er strax far­ið að bera ár­ang­ur, nokkr­um mán­uð­um frá upp­hafi verk­efn­is­ins. 56% stúlkna í Tógó eru fórn­ar­lömb kyn­ferðs­legr­ar misneyt­ing­ar og 17,3% stúlkna verða barns­haf­andi fyr­ir 18 ára ald­ur.

Í nóv­em­ber 2019 ákvað ut­an­rík­is­ráðu­neyt­ið að styrkja þriggja ára verk­efni SOS Barna­þorp­anna í Tógó sem mið­ar að því að draga úr kyn­ferð­is­legri mineyt­ingu gegn börn­um, einkum stúlk­um.

Man­sal og vændi

Verk­efn­is­svæð­ið er Ogou-hér­að norð­ur af Lomé, höf­uð­borg Tógó. Þjóð­braut­in til höf­uð­borg­ar­inn­ar ligg­ur þar í gegn með til­heyr­andi vöru­flutn­ing­um frá ná­granna­ríkj­un­um. Skugga­hlið­ar þeirra eru man­sal og að ung­ar stúlk­ur á svæð­inu leið­ast út í vændi. Að auki gera hefð­ir og sam­fé­lags­leg gildi það að verk­um að kyn­ferð­is­leg misneyt­ing á börn­um, barnagift­ing­ar stúlkna og brott­fall ung­lings­stúlkna úr grunn­skól­um vegna þung­un­ar eru að­kallandi vanda­mál í Tógó.

Verk­efn­ið er að fullu fjár­magn­að frá Ís­landi. Styrk­ur ut­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er um 36 millj­ón­ir króna, eða 80% af kostn­aði. Þau 20% sem upp á vant­ar koma frá frjáls­um fram­lög­um sem ein­stak­ling­ar og fyr­ir­tæki greiða til SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi.

Minnka hvatann til kynferðislegrar misneytingar

Með­al út­færslu­at­riða í verk­efn­inu eru fræðsla um rétt­indi barna, stuðn­ing­ur við fjöl­skyld­ur stúlkna til fjár­hags­legs sjálf­stæð­is, að­gengi að vaxta­laus­um smá­lán­um með það að mark­miði að auka tekju­mögu­leika fá­tækra fjöl­skyldna og margt fleira. All­ar þess­ar að­gerð­ir miða að því að draga úr um­ræddu of­beldi gegn börn­um.

Árangur þrátt fyrir Covid

Verk­efn­ið hófst í mars 2020 eða um svip­að leyti og heim­ur­inn all­ur um­hverfð­ist vegna Covid-19. Fyrstu mán­uð­irn­ir fóru að mestu í und­ir­bún­ing og að hefja vinnu við vit­und­ar­vakn­ingu í sam­fé­lag­inu. Al­mennt séð hef­ur verk­efn­ið geng­ið vel þrátt fyr­ir hindr­an­ir af völd­um far­ald­urs­ins.

Nauðgari og mannræningi sendur í fangelsi

Nefna má að 11 stúlk­ur, fórn­ar­lömb kyn­ferð­isof­beld­is, hafa feng­ið inni á bráða­birgða­heim­ili SOS vegna verk­efn­is­ins. All­ar hafa þær feng­ið þá hjálp sem þær þurftu og eru nú komn­ar aft­ur í skóla eft­ir að hafa misst úr námi. Einni þeirra hafði ver­ið rænt og henni nauðg­að. Vegna að­komu starfs­fólks SOS tókst að hafa uppi á nauðg­ar­an­um og er hann nú kom­inn á bak við lás og slá. Ólík­legt er að sú nið­ur­staða hefði náðst ef Ís­lend­ing­ar hefðu ekki sett þetta verk­efni af stað og fjár­magn­að það með ut­an­rík­is­ráðu­neyti Ís­lands.

Þá hef­ur starfs­fólk verk­efn­is­ins haft uppi á 14 öðr­um stúlk­um sem hætt­ar voru í námi og kom­ið þeim aft­ur í skóla eft­ir við­ræð­ur við for­eldra þeirra og skóla­yf­ir­völd. Það er því óhætt að segja að verk­efn­ið byrji vel.

[1] Misneyt­ing er brot þar sem mað­ur not­ar sér bág­indi ann­ars, ein­feldni, sjúk­dóm, það að hinn er hon­um háð­ur, sál­ar- eða lík­ams­ástand o.s.frv. í auðgn­un­ar­skyni, til að koma fram kyn­ferð­is­leg­um vilja sín­um eða á ann­an sak­næm­an hátt.

Þú getur styrkt þetta verkefni í Tógó með stöku frjálsu fram­lagi hér á sos.is eða með millifærslu í heimabanka.
Reikn­ings­núm­er: 334-26-52075
Kennitala: 500289-2529
Skýr­ing: Tógó

Stakt fram­lag

Gefa stakt fram­lag

Stakt framlag

Þú get­ur styrkt starf SOS Barna­þorp­anna með frjáls­um, stök­um fram­lög­um þeg­ar þér hent­ar. Þannig tek­ur þú þátt í að skapa þann fjár­hags­lega grunn sem ger­ir sam­tök­un­um kleift að byggja ný barna­þorp, sinna upp­bygg­ingu og halda úti um­bóta­verk­efn­um um heim all­an. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi fjár­magna fjöl­mörg verk­efni víða um heim með frjáls­um fram­lög­um - allt í þágu barna!

Styrkja