Fréttayfirlit 23. maí 2025

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið

Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna fyrir árið 2024 hefur nú verið birt hér á heimasíðunni eftir aðalfund samtakanna 19. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall rekstrarkostnaðar er með því allra lægsta sem gerist eða aðeins 14,5%. Heildartekjur samtakanna voru 952 milljónir króna og þar af voru framlög styrktaraðila 884 milljónir króna.

Eftirfarandi er ávarp fjármálastjóra SOS Barnaþorpanna í ársskýrslunni.

Heildartekjur 952 milljónir

Á árinu 2024 styrktu 22.445 einstaklingar og 542 lögaðilar SOS Barnaþorpin á Íslandi, ýmist með mánaðarlegum framlögum, stökum eða bæði. Framlög einstaklinga og lögaðila námu 793 milljónum kr. á árinu en voru 625 milljónir árið 2023. Opinber framlög lækkuðu milli ára og námu 90,8 milljónum kr., samanborið við 97,4 milljónir kr. árið 2023. Þannig námu heildarframlög styrktaraðila 884 milljónum kr. á árinu 2024 og hækkuðu þau um 162 milljónir kr. milli ára.  

Þrátt fyrir að framlög einstaklinga og lögaðila hafi hækkað um 168 milljónir kr. milli ára nam hækkun heildartekna samtakanna 152 milljónum og voru 952 milljónir kr. árið 2024. Skýrist það þannig að opinber framlög lækkuðu um 7 milljónir milli ára, auk þess sem liðurinn fjármagnstekjur og gengishagnaður/tap lækkaði um 10 milljónir á milli ára.

Stærsti hluti af framlögum til SOS á Íslandi kemur frá SOS-foreldrum sem við sendum til barnaþorpa í 107 löndum. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármálastjóri.

Framlög styrktaraðila 884 milljónir

Frá stofnun samtakanna hér á landi hefur almenningur stutt dyggilega við starfið og var þar engin undantekning á árinu 2024. Af þeim 884 milljónum sem söfnuðust frá styrktaraðilum kom 88% styrkja frá almenningi eða rúmar 782 milljónir kr. Stærsti hluti af framlögum til SOS á Íslandi kemur frá SOS-foreldrum sem við sendum til barnaþorpa í 107 löndum.

Stór erfðagjöf barst samtökunum á árinu og sem fyrr voru stök framlög eins og valkröfur og neyðarsafnanir stór hluti heildarframlaga. Börn styrktu SOS með ágóða af skemmtilega fjölbreyttum fjáröflunarleiðum sem fyrr og er alltaf ánægjulegt að verða vitni af því hvað íslenskum börnum er umhugað um jafnaldra sína sem búa við aðrar aðstæður annarsstaðar í heiminum.

Rekstrarkostnaður 14,5%

Af heildartekjum ársins var hlutfall skrifstofu- og stjórnunarkostnaðar 16% sem er fyrir neðan viðmið okkar um 20% þak á rekstrarkostnaði. Þess ber þó að geta að inni í þeirri tölu er launakostnaður vegna beinnar umsýslu starfsfólks hér á landi við erlend- og innlend verkefni. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir launakostnaði erlendra- og innlendra verkefna nemur kostnaðarhlutfallið 14,5%. Þetta þýðir að á árinu 2024 runnu 855 krónur af hverju eitt þúsund króna framlagi í sjálft hjálparstarfið.

Rakel Lind Hauksdóttir 
fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Nýlegar fréttir

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
22. maí 2025 Erfðagjafir

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ráðstafað 23 milljónum króna af erfðagjöf til háskólamenntunar ungmenna í Afríku, nánar tiltekið í Rúanda. Ráðstöfunin er samkvæmt óskum arfleifanda, Baldvins Leifssonar...

Heildarframlög til SOS Barnaþorpanna á Íslandi aldrei verið hærri
21. maí 2025 Almennar fréttir

Heildarframlög til SOS Barnaþorpanna á Íslandi aldrei verið hærri

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 19. maí sl. og þar voru ársreikningur og ársskýrsla samtakanna kynnt aðildarfélögum. Árið 2024 var metár í rekstri samtakanna og námu heil...