

Framlagið margfaldast
Framlög til fjölskyldueflingar SOS margfaldast á þeim svæðum þar sem við hjálpum. Langtímaáhrifin eru m.a. þau að fjölskyldurnar fara að afla sér tekna og standa á eigin fótum. Það hefur svo jákvæð keðjuáhrif á nærsamfélagið og innviði þess. Þetta köllum við félagslega arðsemi.
Á heimsvísu eru SOS Barnaþorpin með 620 Fjölskyldueflingarverkefni sem hjálpa hálfri milljón manna. SOS á Íslandi fjármagnar tvö slík verkefni, í Eþíópíu og Malaví.
Hér geta Fjölskylduvinir nálgast sögur, fréttir og upplýsingar um Fjölskyldueflinguna.
SOS fjölskylduvinur
Gerast SOS fjölskylduvinur
Sem SOS-fjölskylduvinur aðstoðar þú sárafátækar barnafjölskyldur til sjálfbærni og sjálfstæðis. Þannig kemurðu í veg fyrir að börnin verði vanrækt og yfirgefin. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega fréttir, sögur og myndefni af barnafjölskyldunum sem þú hjálpar.