Húsdýr
Ertu að leita að gjöf fyrir einhvern sem vantar ekkert?
Gjafabréf SOS heldur áfram að gefa og nauðstödd börn njóta góðs af.
Með þessari gjöf sérðu einni efnaminni barnafjölskyldu fyrir húsdýri. Fjölskyldan getur fengið geit, svín eða kind. Afurðir dýrsins geta nýst fjölskyldunni á ýmsan máta, m.a. til þess að auka lífsgæði með fjölbreyttari fæðu og einnig mögulegrar tekjuöflunar með því að selja afurðir eða afkvæmi dýrsins.
Hægt er að fá gjafabréfið innpakkað í fallega og stílhreina gjafaöskju bundna saman með silkiborða á einungis 250 kr. Kaupa þarf innpökkun aukalega hér.
Gjafabréfið sendist sjálfkrafa sem pdf í tölvupósti til kaupanda en einnig er hægt að velja að sækja útprentað eintak eða fá heimsent í næsta skrefi.
Gjafabréf
6.000 kr