Fréttayfirlit 15. apríl 2021

Börnum forðað frá kynferðisbrotamönnum í Tógó

Börnum forðað frá kynferðisbrotamönnum í Tógó

Undraverður árangur hefur náðst á skömmum tíma í átaki gegn kynferðislegri misneytingu á börnum í Tógó, verkefni sem fjármagnað er af SOS á Íslandi. Verkefnið hófst í mars 2020 og þrátt fyrir hömlur af völdum Covid-19 er árangurinn framar vonum þegar svo skammt er liðið á verkefnistímann. 

Eins og við höfum áður greint frá hafði fjölmörgum fórnarlömbum kynferðisofbeldis á svæðinu verið hjálpað og nú hafa alls þrír nauðgarar verið fangelsaðir samkvæmt nýjustu úttektarskýrslu frá stjórnendum verkefnisins.

Frá verkefnissvæðinu í Tógó Frá verkefnissvæðinu í Tógó

Foreldrarnir þekkja ekki hætturnar

Komið hefur í ljós að foreldrar eru illa upplýstir um réttindi barna sinna og gera sér t.a.m. ekki grein fyrir því þegar brotið hefur verið á börnunum. Þar af leiðandi er mikill skortur á tilkynningum til lögreglu um mistnotkun. Einn af mikilvægust þáttum í verkefninu er vitundarvakning meðal almennings um þær alvarlegu afleiðingar sem kynferðisbrot hafa á þolendur.

Framleiddir voru 6 fræðsluþættir fyrir útvarp sem hafa náð til margra um hætturnar og þá aðstoð sem er til boða unga þolendur kynferðisofbeldis. Þessir þættir fengu mikla hlustun og hafa leitt af sér fleiri tilkynningar um kynferðisbrot.

Fórnarlömb hrökklast úr námi

Ekki síður mikilvægur þáttur er að veita fórnarlömbum sálfræðiþjónustu og hjálpa þeim með félagslega þætti við að fara aftur út í samfélagið. Í lok desember hafði 14 stúlkum á aldrinum 15-20 ára, sem höfðu hrökklast úr skóla vegna misnotkunar, verið hjálpað á þann hátt.

Sem fyrr segir er skammt liðið af verkefninu sem er til þriggja ára en byrjunin lofar góðu og við hlökkum til að segja ykkur frekari fréttir af því.

Verkefnið er að fullu fjármagnað frá Íslandi. Styrkur utanríkisráðuneytisins er um 36 milljónir króna, eða 80% af kostnaði. Þau 20% sem upp á vantar koma frá frjálsum framlögum sem einstaklingar og fyrirtæki greiða til SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Stakt framlag

Gefa stakt framlag

Stakt framlag

Þú getur styrkt starf SOS Barnaþorpanna með frjálsum, stökum framlögum þegar þér hentar. Þannig tekur þú þátt í að skapa þann fjárhagslega grunn sem gerir samtökunum kleift að byggja ný barnaþorp, sinna uppbyggingu og halda úti umbótaverkefnum um heim allan. SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna fjölmörg verkefni víða um heim með frjálsum framlögum - allt í þágu barna!

Styrkja