Velgjörðafyrirtæki SOS Barnaþorpanna

Vel­gjörða­fyr­ir­tæki SOS Barna­þorp­anna

Betri heim fyr­ir öll börn

Vel­gjörða­fyr­ir­tæki SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og stuðla að fram­gangi heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þró­un sem SOS vinn­ur að með marg­þættu starfi. Að bera þenn­an titil er yf­ir­lýs­ing við­kom­andi fyr­ir­tæk­is um að það geri heim­inn betri fyr­ir mun­að­ar­laus og yf­ir­gef­in börn og stuðli að betra lífi fyr­ir sára­fá­tæk­ar barna­fjöl­skyld­ur.

Hvað er vel­gjörða­fyr­ir­tæki?

Vel­gjörða­fyr­ir­tæki styrk­ir SOS Barna­þorp­in með fram­lagi sem nem­ur að minnsta kosti 500.000 krón­um á ári og hef­ur heim­ild til að merkja sig sem slíkt á op­in­ber­um vett­vangi.

Börn um all­an heim skort­ir ekki hæfi­leika held­ur tæki­færi. Það er í okk­ar hönd­um að veita börn­um tæki­færi og skapa þannig betri heim og bjart­ari fram­tíð fyr­ir öll börn. Vel­gjörða­fyr­ir­tæki SOS hafa já­kvæð áhrif á líf mun­að­ar­lausra barna og sára­fá­tækra barna­fjöl­skyldna.

Vel­gjörða­fyr­ir­tæki SOS:

  • læt­ur sig varða vel­ferð barna
  • vill láta gott af sér leiða og veita börn­um tæki­færi til betra lífs
  • vill stuðla að jöfn­um tæki­fær­um barna óháð trú, upp­runa og bú­setu
  • vinn­ur að Heims­mark­mið­um Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þró­un
Heims­mark­mið­in

Í gegnum margþætt starf á heimsvísu stuðla SOS Barnþorpin að framgangi átta Heimsmarkmiða (1,3,4,5,8,10,16 og 17). Þar af eru fimm Heimsmarkmið miðlæg í starfi samtakanna, þ.e. markmið um enga fátækt, menntun fyrir alla, góða atvinnu, aukinn jöfnuð og frið og réttlæti.

Velgjörðafyrirtæki SOS ger­ir sér grein fyr­ir því að heim­ur­inn get­ur ver­ið harð­ur og mis­skipt­ing mik­il.

Velgjörðafyrirtæki SOS skor­ast ekki und­an né leið­ir neyð barna hjá sér, sama hversu erfitt það kann að vera að horf­ast í augu við raun­veru­leik­ann.

Velgjörðafyrirtæki SOS legg­ur sitt af mörk­um í þágu barna um all­an heim. Þetta er fyr­ir­tæki sem vill betri heim fyr­ir öll börn.

Það er í þínum höndum að gera heiminn betri fyrir alla sem í honum búa. Nelson Mandela (var dyggur stuðningsmaður SOS Barnaþorpanna og SOS-foreldri)
Af hverju að ger­ast Vel­gjörða­fyr­ir­tæki?

Að ger­ast Vel­gjörða­fyr­ir­tæki hef­ur já­kvæða kosti í för með sér. Í því sam­bandi ber helst nefna að fyr­ir­tæk­ið styð­ur við heims­markmið Sam­ein­uðu þjóð­anna, ánægja starfs­manna og tryggð við­skipta­vina kann að aukast, þú stuðl­ar að vit­und­ar­vakn­ingu, sala kann að aukast og fyr­ir­tæk­ið þitt er sam­fé­lags­lega ábyrgt.

Hvað fær Vel­gjörða­fyr­ir­tæki?

Öll Vel­gjörða­fyr­ir­tæki fá tengi­lið hjá SOS Barna­þorp­un­um sem mun rækta sam­band við við­kom­andi fyr­ir­tæki. Boð á ár­leg­an fund til­eink­uð­um Vel­gjörða­fyr­ir­tækj­um SOS Barna­þorp­anna. Við und­ir­rit­un sam­starfs­samn­ings fær fyr­ir­tæk­ið inn­ramm­aða stað­fest­ingu um að fyr­ir­tæk­ið sé Vel­gjörða­fyr­ir­tæki SOS.

Í upp­hafi sam­starfs munu SOS Barna­þorp­in fjalla um sam­starf­ið á sín­um miðl­um. Vel­gjörða­fyr­ir­tækj­um er vel­kom­ið að nota "Vel­gjörða­fyr­ir­tækj­astimp­il" á vef­síðu sinni. Nafn og merki Vel­gjörða­fyr­ir­tækja er birt á vef­síðu SOS Barna­þorp­anna (fyr­ir­tækja­svæði) og merki fyr­ir­tæk­is mun birt­ast í SOS-frétta­blaði.

Hvernig verk­efni styrki ég?

SOS Barna­þorp­in veita fyrst og fremst mun­að­ar­laus­um og yf­ir­gefn­um börn­um stað­gengil fyr­ir þá fjöl­skyldu sem þau hafa misst. SOS á Ís­landi fjár­magn­ar auk þess neyð­ar­að­stoð­ar- og um­bóta­verk­efni sem lúta að vel­ferð barna og ung­menna í bág­stödd­um að­stæð­um. Þar ber hæst fjöl­skyldu­efl­ing sem geng­ur út á að styðja barna­fjöl­skyld­ur í sára­fá­tækt til sjálf­stæð­is svo for­eldr­ar geti séð fyr­ir börn­um sín­um. Sam­an skoð­um við hvaða mögu­leik­ar henta þínu fyr­ir­tæki best.

Vel­gjörða­fyr­ir­tæki SOS Barna­þorp­anna
  • Wise
  • Vettvangur
  • Lambhús