Yfirlit

Lambhús

Lambhús eru þyrping smáhýsa, staðsett á Mýrum í Hornafirði 30 km vestan við Höfn. Þar hefur verið boðið upp á gistingu frá árinu 2010. Húsin eru í landi jarðarinnar Lambleiksstaða sem liggur að suðurjaðri Vatnajökulsþjóðgarðs. Þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla og fjalla og stutt í margar fallegar gönguleiðir og áhugaverða áfangastaði.