Neyð á Gaza

Sjá einnig: Fékkstu símtal frá SOS?

Vilj­ir þú held­ur styrkja með milli­færslu í banka eða heima­banka eru reikn­ings­upp­lýs­ing­arn­ar eft­ir­far­andi:

0133-26-004266 (reikningsnúmer)
500289-2529 (kennitala SOS)

Einnig er hægt að styrkja með því að hringja í:
907 1001 (1.000 kr.)
907 1002 (2.000 kr.)

Aðgerðir SOS á Gaza

Með aðgerðum okkar í Palestínu hjálpum við fjölskyldum sem orðið hafa viðskila að sameinast á ný og tökum að okkur börn sem misst hafa foreldra sína. Við veitum börnum áfallahjálp og hlúum að geðheilsu þeirra eftir þær miklu hörmungar sem þau hafa upplifað.

Þessi þáttur er ekki alltaf í forgangi á neyðar- og hamfarasvæðum en við leggjum mikla árherslu á andlega heilsu barna, því við vitum hve miklu máli hún skiptir fyrir framtíð þeirra. Við dreifum einnig matvælum, vatni og öðrum nauðsynjum til fólks á svæðinu í samstarfi við önnur virt, sjálfstæð og vottuð hjálparsamtök.

Sjá einnig: Þetta erum við að gera á Gaza (Reglulega uppfærð frétt á sos.is)

95% framlags þíns fer til SOS í Palestínu

Fram­lög­um í þessa neyð­ar­söfn­un er eingöngu út­hlut­að til SOS Barnaþorpanna í Palestínu og rennur 95% söfnunarfjár þangað. SOS á Íslandi sendir allt söfnunarfé óskert til alþjóðasamtaka SOS Children´s Villages í Vínarborg í Austurríki þar sem 5% verða eftir í umsýslukostnað venju samkvæmt.

Börn en ekki pólitík

Aðgerðir samtakanna til hjálpar börnum eru með öllu hlutlausar þegar kemur að stjórnmálum og landamærum. Börnin eru í forgangi, óháð bakgrunni eða stöðu. Aðgerðir okkar á staðnum lúta ströngu eftirliti alþjóðasamtaka SOS Children´s Villages sem hlotið hafa hina alþjóðlegu CHS vottun sem neyðarhjálparsamtök með tilheyrandi ströngum verkferlum og eftirliti. Fagmennska í neyðaraðgerðum skiptir öllu máli.

SOS Barnaþorpin hafa verið til staðar fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn í Palestínu frá 1968 og hafa því yfirgripsmikla þekkingu á aðstæðum.

Neyð á Gaza

Neyð á Gaza

Styrktu neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra á Gaza í Palestínu. Þar ríkir mikil neyð. Tugþúsundir hafa látið lífið og fjöldi barna misst foreldra sína. SOS Barnaþorpin starfa á Gaza og eru í góðri aðstöðu til að hjálpa börnum þar.

Veldu eitt af boxunum hér fyrir neðan. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni (lágmarksupphæð er 1.000 krónur.)

Ég vil greiða með

Við virðum friðhelgi gesta okkar á vefnum og mikilvægi þess að fólk verndi persónulegar upplýsingar. Í persónuverndaryfirlýsingunni okkar kemur fram hvers vegna við öflum, notum og geymum persónuupplýsingar. Persónuverndaryfirlýsing kann að taka breytingum og hvetjum við þig því til þess að kíkja á hana með reglulegu millibili.