Palestína og Ísrael

Vilj­ir þú held­ur styrkja með milli­færslu í banka eða heima­banka eru reikn­ings­upp­lýs­ing­arn­ar eft­ir­far­andi:

0133-26-004266 (reikningsnúmer)
500289-2529 (kennitala SOS)

Einnig er hægt að styrkja með því að hringja í:
907 1001 (1.000 kr.)
907 1002 (2.000 kr.)

Aðgerðir SOS

Með aðgerðum okkar í Palestínu og Ísrael hjálpum við fjölskyldum sem orðið hafa viðskila að sameinast á ný og tökum að okkur börn sem misst hafa foreldra sína. Við veitum börnum áfallahjálp og hlúum að geðheilsu þeirra eftir þær miklu hörmungar sem þau hafa upplifað.

Þessi þáttur er ekki alltaf í forgangi á neyðar- og hamfarasvæðum en við viljum leggja mikla árherslu á andlega heilsu barna, því við vitum hve miklu máli hún skiptir fyrir framtíð þeirra. Einnig munum við dreifa matvælum, vatni og öðrum nauðsynjum til fólks á svæðinu og gera það í samstarfi við önnur virt, sjálfstæð og vottuð hjálparsamtök.

Þær fjölskyldur sem verða áfram í sárri neyð í Palestínu eftir að neyðaraðgerðum lýkur verða fluttar yfir í fjölskyldueflingu SOS.

Börn en ekki pólitík

Aðgerðir samtakanna til hjálpar börnum eru með öllu hlutlausar þegar kemur að stjórnmálum og landamærum. Börnin eru í forgangi, óháð bakgrunni eða stöðu. Verkefnið er unnið í sameiningu landssamtaka SOS í Palestínu og Ísrael og undir ströngu eftirliti alþjóðasamtaka SOS sem hlotið hafa hina alþjóðlegu CHS vottun sem neyðarhjálparsamtök með tilheyrandi ströngum verkferlum og eftirliti. Fagmennska í neyðaraðgerðum skiptir öllu máli.

SOS Barnaþorpin hafa verið til staðar fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn í Palestínu frá 1968 og í Ísrael frá 1977 og hafa því yfirgripsmikla þekkingu á aðstæðum. Þá skiptir miklu máli að þessi tvenn landssamtök SOS eiga mjög gott samstarf og ríkir á milli þeirra traust og virðing, enda börnin í forgangi en ekki stjórnmál eða landamæradeilur. Þetta góða samstarf mun koma sér vel í aðstoð okkar við börnin.

Neyð fyrir botni Miðjarðarhafs

Neyð fyrir botni Miðjarðarhafs

Styrktu neyðaraðgerðir SOS fyrir fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Palestínu og Ísrael. Þar ríkir mikil neyð. Þúsundir hafa látið lífið og fjöldi barna misst foreldra sína. SOS Barnaþorpin starfa beggja vegna landamæranna og eru í góðri aðstöðu til að hjálpa börnum þar.

Ég vil greiða með

Við virðum friðhelgi gesta okkar á vefnum og mikilvægi þess að fólk verndi persónulegar upplýsingar. Í persónuverndaryfirlýsingunni okkar kemur fram hvers vegna við öflum, notum og geymum persónuupplýsingar. Persónuverndaryfirlýsing kann að taka breytingum og hvetjum við þig því til þess að kíkja á hana með reglulegu millibili.