Framlagið margfaldast
Framlög fjölskylduvina margfaldast á verkefnasvæðum okkar. Langtímaáhrifin eru m.a. þau að fjölskyldurnar fara að afla sér tekna og standa á eigin fótum. Það hefur svo jákvæð keðjuáhrif á nærsamfélagið og innviði þess. Þetta köllum við félagslega arðsemi (social return of investment).
SOS á Íslandi fjármagnar fjölskyldueflingu í Eþíópíu, Malaví og Rúanda.
Hér geta Fjölskylduvinir nálgast sögur, fréttir og upplýsingar um Fjölskyldueflinguna.
SOS fjölskylduvinur
Gerast SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styrkja fjölskyldueflingu SOS. Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.