Spurningar og svör
Hvernig gerist ég styrktarforeldri?
Hér til hægri á síðunni getur þú valið að gerast styrktarforeldri eða styðja við starf SOS-samtakanna með öðrum hætti. Einnig getur þú hringt í síma 564 2910.
Hvað kostar að styrkja barn?
Styrktarforeldrar greiða kr. 3.000 á mánuði fyrir að styrkja eitt ákveðið barn.
Hvað kostar að styrkja barnaþorp?
Barnaþorpsvinir greiða kr. 2.500 á mánuði fyrir að styrkja eitt ákveðið barnaþorp.
Hvað kostar að gerast Skjólvinur?
Skjólvinir styrkja ekki eitt ákveðið barn heldur hjálparstarf SOS-samtakanna um allan heim með föstu mánaðarlegu framlagi. Þeir ákveða sjálfir upphæð framlagsins.
Er hægt að velja sér barn eftir útliti?
SOS Barnaþorpin virða rétt skjólstæðinga sinna til persónuverndar og því er ekki hægt að skoða myndir á heimasíðu okkar af börnum í neyð og velja sér styrktarbarn eftir útliti. Við birtum heldur ekki nöfn þeirra barna sem þarfnast stuðnings.
(Að sama skapi biðjum við styrktarforeldra um að birta ekki persónulegar upplýsingar um börnin opinberlega heldur halda þeim innan sinnar fjölskyldu og náins vinahóps.)
Hvaða barn fæ ég sem styrktarforeldri?
SOS-barnaþorpin útvega styrktarforeldrum barni þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þó er hægt að koma með óskir um kyn barns og frá hvaða heimsálfu það er.
Hvaða þorp fæ ég sem barnaþorpsvinur?
SOS-barnaþorpin útvega barnaþorpsvinum þorpi þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þó er hægt að koma með óskir um land eða heimsálfu.
Hvað fæ ég gamalt barn?
Styrktarforeldrar geta átt von á að fá börn á aldrinum 0-14 ára. Liggi sérstakar ástæður að baki geta væntanlegir styrktarforeldrar lagt fram óskir um aldur barns.
Hvaða börn fá að búa í SOS-barnaþorpi?
SOS-barnaþorpin taka við þeim börnum sem misst hafa foreldra sína eða geta ekki búið hjá foreldrum sínum af einhverjum ástæðum. Yfirleitt eru börnin undir tíu ára aldri þegar þau flytja í þorpið. Ákvarðanir um hvaða börn eru send í barnaþorp eru teknar af yfirvöldum í viðkomandi landi.
Hvað fæ ég í hendurnar þegar ég gerist styrktaraðili?
Við sendum þér strax staðfestingu á þátttöku þinni ásamt hagnýtum upplýsingum. Um tveimur vikum síðar færðu upplýsingar um barnið/þorpið þitt ásamt mynd af því. Einnig fylgja upplýsingar um landið sjálft.
Má ég heimsækja barnið mitt?
Styrktarforeldrum og barnaþorpsvinum er velkomið að heimsækja börn sín og þorp. Við biðjum þá sem vilja heimsækja barn/þorp sem þeir styrkja að hafa samband við skrifstofu SOS-barnaþorpanna á Íslandi með góðum fyrirvara svo hægt sé að skipuleggja heimsókn og hún megi takast sem best.
Má ég senda barninu bréf og gjafir?
Þú mátt að sjálfsögðu senda barninu bréf og smágjafir. Heimilisfangið finnur þú í upplýsingapakkanum sem þú fékkst þegar þú gerðist styrktaraðili. Ef þú ætlar að senda bréf eða gjafir í tilefni afmælis eða hátíða er rétt að senda póstinn tímanlega.
Get ég sent barninu mínu tölvupóst?
Nei, því miður er það ekki hægt. Öll samskipti þorpanna fara í gegnum aðalskrifstofurnar í viðkomandi landi en misjafnt er hvort þorpin sjálf hafi netaðgang. Það eru því gömlu góðu bréfin sem gilda í samskiptum við styrktarbörnin.
Fæ ég bréf frá barninu?
Börnunum er ekki uppálagt að skrifa styrktarforeldrum sínum en þeim er þó frjálst að gera það og mörg barnanna nýta sér þann möguleika. Eðli málsins samkvæmt geta styrktarforeldrar þó ekki treyst því að fá bréf frá barninu. Tvisvar á ári færðu bréf frá þorpinu og í öðru þeirra er sagt frá persónulegum högum þíns barns.
Má ég gefa barninu pening?
Öll börn í SOS-barnaþorpum eiga sinn eigin sparireikning og er styrktarforeldrum velkomið að leggja inn á reikning síns barns. Heimsendir gjafaseðlar eru ætlaðir til slíkra gjafa. Eftir að hafa greitt inn á reikning barnsins færðu þakkarbréf frá þorpinu þar sem upphæðin er staðfest.
Hversu lengi er maður styrktarforeldri/barnaþorpsvinur?
Hugmyndin með styrktarforeldra og barnaþorpsvini er að þeir taki þátt í því með SOS-barnaþorpunum að veita börnum í neyð langvarandi hjálp. Hins vegar geta þeir hætt stuðningi hvenær sem þeir óska. Þeim sem vilja gefa tímabundið eða óreglulega er bent á að gerast SOS-barnavinir eða SOS-skjólvinir.
Duga kr. 3.000 á mánuði til að sjá barni fyrir heimili, mat, fatnaði, menntun og heilsugæslu?
SOS-barnaþorpin vilja ekki kasta til hendinni heldur vanda þau til verka og leggja áherslu á að börnin fái góða og varanlega hjálp. Á það við um byggingar, menntun og annað í lífi barnanna. Framfærslukostnaður eins barns er því nokkuð hærri en kr. 3.000 og þurfa fleiri en einn styrktaraðili að standa að baki hverju barni (þó er aðeins eitt íslenskt styrktarforeldri með hvert barn). Það væri til lítils að bjarga börnum úr fátækt ef við ætluðum að viðhalda örbirgð þeirra - en einstaklingur er talinn búa við sára fátækt hafi hann minna en $ 1.25 á dag til að lifa af.
Má ég vera styrktarforeldri margra barna?
Ekkert er því til fyrirstöðu að styrktarforeldrar taki að sér fleiri en eitt barn.
Eru börnin alin upp í ákveðinni trú?
SOS-barnaþorpin taka ekki afstöðu til ólíkra trúarbragða. Það þýðir þó ekki að samtökin hafni trúarbrögðum. Hvert barn er alið upp í þeirri trú sem foreldrar þess tilheyra/tilheyrðu. Ef upplýsingar um trúarbrögð foreldra liggja ekki fyrir eru börnin alin upp í samræmi við það sem algengast er í landinu eða á landssvæðinu. Í mörgum barnaþorpum má finna börn og SOS-mæður sem aðhyllast ólík trúarbrögð.
Hversu stór hluti styrktarframlags fer í umsýslu?
Barnaþorpsvinir greiða kr. 2.500 og styrktarforeldrar kr. 3.000 á mánuði. Skrifstofa SOS-barnaþorpanna á Íslandi fær ekki krónu af þessum framlögum heldur fjármagnar rekstur sinn með öðrum hætti. Alþjóðaskrifstofa SOS-barnaþorpanna í Vínarborg í Austurríki fær hinsvegar 10% af framlögum og nýtir þá fjármuni m.a. til að hafa eftirlit með þorpunum og gæta þess að strangar kröfur samtakanna séu uppfylltar þegar kemur að umönnun barnanna. En 90% fara beint til barnaþorpsins og nýtast til framfærslu barnsins (eða reksturs þorpsins ef þú ert barnaþorpsvinur).
