• Jose ásamt SOS-móður sinni
    Jose ásamt SOS-móður sinni

Heppnasti strákur í heimi

3.8.2011

Jose hefur loksins eignast þá fjölskyldu sem hann hafði dreymt um lengi. Sú umhyggja og skilningur sem hann mætti í SOS Barnaþorpinu í Morelia í Mexíkó hafa gjörbreytt lífi hans. Jose segir sjálfur þannig frá:

„Ég heiti Jose. Ég er ellefu ára og bý í Ástralíuhúsinu í barnaþorpinu í Morelia. Ég fæddist í litlum bæ þar sem ég bjó ásamt systur minni og móður. En svo yfirgaf mamma okkur þegar ég var fimm ára og systir mín 4 ára. Ég man vel hve sárt það var þegar mamma fór frá okkur og kom ekki aftur, jafnvel þó hún hafi lofað að koma aftur.

Eins og öll börn þá langaði mig að eiga góða fjölskyldu en ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hélt ég að sá draumur myndi aldrei rætast eftir að mamma skildi okkur systkinin eftir á aðaltorginu í bænum Apatzingan. Ég man þetta eins og það hefði gerst í gær: Mamma fór með okkur á torgið og bað okkur að bíða eftir sér, hún kæmi fljótt aftur. En hún kom aldrei. Svo óttaðist ég að við systkinin yrðum líka aðskilin og sú tilhugsun olli mér gríðarlegri vanlíðan mörg kvöld í röð.

Við vorum afhent yfirvöldum og mál okkar fór fyrir dómara. Á meðan málið var í vinnslu í kerfinu var okkur komið fyrir á hinum ýmsu heimilum. Við vorum að vísu alltaf saman... en það vantaði eitthvað.

tpa-picture-53877Eftir langan tíma var loks farið með okkur í SOS Barnaþorpið og ég hélt að þetta heimili yrði bara eins og öll hin; tímabundið. En ég komst fljótt að því að þetta heimili var öðruvísi. Allir voru svo almennilegir og brostu svo fallega til okkar.

Loksins hafði ég eignast fjölskyldu. Ég hafði eignast SOS-móður sem var alltaf til staðar fyrir mig. Hún studdi mig og litlu systur mína með ráðum og dáðum. Draumur minn um fjölskyldu hafði ræst og ég fengið tækifæri til að vaxa og dafna á góðu heimili, þrátt fyrir að hafa verið yfirgefinn af minni raunverulegu móður.

Ég er duglegur strákur og reyni alltaf að verða betri og betri og hjálpa mömmu og systkinum mínum eins og ég get. Ég reyni að haga mér vel en stundum lendi ég í smá vandræðum þegar ég er að leika mér, án þess að það hafi verið ætlunin. Nú þegar ég hef eignast heimili í SOS Barnaþorpinu á ég ekki bara mömmu, heldur líka systkini... og hana Mörtu mína sem er líka mjög ánægð í barnaþorpinu.

Stundum koma útlendingar í heimsókn sem vilja skoða barnaþorpið og heimilið okkar. Ég sýni þeim stoltur heimilið okkar og þeir fara með bros á vör vegna þess að þeir sjá að okkur líður vel hjá SOS.

Mér finnst ég vera heppnasti strákurinn í öllum heiminum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica