Hugðist yfirgefa nýfætt barn sitt
Dana er einstæð þriggja barna móðir í Búlgaríu. Þegar hún eignaðist þriðja barnið var hún ákveðin í að yfirgefa það en fékkst til að skipta um skoðun eftir að henni bauðst aðstoð Fjölskyldueflingar SOS.
Plamen var aðeins nokkurra mánaða gamall þegar foreldrar hans skildu. Dana og fyrrverandi eiginmaður hennar ákváðu að halda vináttunni þrátt fyrir skilnaðinn og þá nöturlegu staðreynd að fátækt föðurins kæmi í veg fyrir að hann gæti stutt barnsmóður sína og son fjárhagslega.
Dana kynntist þá öðrum manni og varð ófrísk. Hún flutti inn til mannsins sem gekk Plamen litla í föðurstað. Þau voru hamingjusöm þrátt fyrir fátæktina. Fljótlega kom svo barn númer tvö, sem var drengur og fékk hann nafnið Chris.
Þegar Chris var fimm mánaða gamall komst Dana að því að hún var ófrísk. „Við hoppuðum nú ekki beinlínis hæð okkar í loft upp af gleði,“ segir Dana, „en ákváðum að gera gott úr þessu. Eða ég stóð a.m.k. í þeirri meiningu.“ Mánuði áður en Dana átti að fæða yfirgaf maðurinn hana og hefur hún ekki heyrt frá honum síðan.
Dana fylltist mikilli örvæntingu. Hún var fátæk og einstæð tveggja barna móðir, gengin átta mánuði með þriðja barnið. Á hana sótti þunglyndi. Plamen, sem nú er á unglingsaldri, lýsir ástandi móður sinnar þannig: „Hún sat bara við gluggann og grét. Chris var að taka sín fyrstu skref og í stað þess að ganga áfram gekk hann til hliðar vegna þess að eini stuðningurinn sem hann fékk var lítið kaffiborð. Mamma hjálpaði honum ekkert.“
Dana hafði ekki efni á leigunni svo hún flutti inn til foreldra sinna sem bjuggu í tveggja herberja ókláraðri íbúð í fátæku úthverfi höfuðborgarinnar Sofiu.
Þegar kom að fæðingu þriðja barnsins hafði Dana tekið þá ákvörðun að hafna barninu. Hún vildi ekki sjá það eftir fæðinguna og neitaði að láta segja sér hvort um dreng eða stúlku væri að ræða.
Læknirinn sem annaðist Dönu þekkti til Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna og hafði samband við samtökin. Félagsráðgjafi SOS, Tsveti að nafni, hitti Dönu og útskýrði fyrir henni hvernig hún gæti fengið hjálp frá SOS. Í kjölfarið ákvað Dana að skipta um skoðun, halda þriðja syni sínum og þiggja ráðgjöf og aðstoð Fjölskyldueflingar SOS.
Í dag er Plamen í skóla og Dana fær alla þá aðstoð sem hún þarf á að halda til að mæta þörfum sona sinna þriggja.
Á myndinni hér til hliðar bregður félagsráðgjafi Fjölskyldueflingar á leik við ungan skjólstæðing í Búlgaríu.
---
Skjólvinir fjármagna Fjölskyldueflingu SOS. Ert þú Skjólvinur?
