Skömm einstæðu móðurinnar
Á síðasta ári var nýfætt stúlkubarn skilið eftir við hlið SOS Barnaþorps í Líbanon. Enginn vissi hvaðan hún kom og framtíð hennar var óljós. Í dag býr hún í foreldrahúsum og dafnar vel.
Marie-Elise* vóg aðeins 1.2 kíló þegar hún fannst fyrir utan hliðið. Starfsfólk þorpsins tók hana inn og hlúði að henni. Hún var greinilega fyrirburi og líklega fædd utan hjónabands, en félagsleg staða einstæðra mæðra í Líbanon er mjög slæm og margar konur í þeim sporum láta frá sér börn sín til að forðast skömm og útskúfun.
Þar sem það er almennt skoðun SOS Barnaþorpanna að best sé fyrir börn að alast upp með foreldrum sínum var hafin leit að móðurinni. Sú leit bar loks árangur og kom þá í ljós að móðirin var ekki í sambandi við föðurinn og treysti sér ekki til að eiga stúlkuna og ala hana upp ein síns liðs.
Starfsfólk SOS Barnaþorpsins ræddi málið ítarlega við móðurina og hafði að lokum upp á föðurnum sem var einhleypur lögreglumaður. Foreldrunum var gerð grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir að eiga barn og fór svo að lokum að foreldrarnir ákváðu að giftast og ala stúlkuna upp saman.
Þegar SOS móðirin sem annast hafði stúlkuna í barnaþorpinu var spurð hvort ekki væri erfitt að láta hana frá sér, sagði hún: „Við erum ekki hér til að eiga börnin, heldur til að hjálpa þeim. Þetta var besta lausnin fyrir litlu Marie-Elise.“
Í dag er Marie-Elise ellefu mánaða. Hún dafnar vel í foreldrahúsum og fær starfsfólk SOS Barnaþorpsins að heimsækja hana reglulega til að fylgjast með líðan hennar.
---
SOS Barnaþorpin í Líbanon reka fjögur barnaþorp, þrjú ungmennaheimili, þrjá leikskóla og þrjár samfélagsmiðstöðvar.
*Ekki hennar rétta nafn.

