• Ester ásamt vinkonum sínum
    Ester ásamt vinkonum sínum

Fimm árum of sein í skólann

13.3.2011

Ester er tíu ára og með þeim eldri sem stunda nám í fyrsta bekk Shashi grunnskólans í Simbabve. Það var ekki fyrr en hún flutti í SOS Barnaþorp sem hún fékk loksins að hefja nám... fimm árum of seint.*

 

Ester hefur upplifað skin og skúrir þrátt fyrir ungan aldur. Sjö ára gömul þurfti hún að halda heimilinu gangandi og sjá um veika móður sína og yngri systur, hana Tínu.

Í lok síðasta árs, þegar Ester var orðin tíu ára, fengu þær systur inni í SOS Barnaþorpinu í Bindura og þá fór ýmislegt jákvætt að gerast.

Um leið og þær höfðu jafnað sig á flutningnum og farnar að aðlagast lífinu í barnaþorpinu fékk SOS móðir þeirra kennara til að undirbúa Ester fyrir inntökupróf í fyrsta bekk. Ester lagði sig alla fram og stundum kallaði móðir hennar hana svamp, þar sem hún virtist drekka allan fróðleikinn í sig eins og svampur. Allir í þorpinu aðstoðuðu Ester og tóku tillit til hennar, enda mikilvægt að standa sig vel í inntökuprófinu.

Þegar stóri dagurinn rann upp greiddi Kapurura, SOS móðir Esterar, henni eins vel og hún gat og fann til handa henni falleg föt og pússaða skó. Ester var full sjálfstrausts þegar hún yfirgaf þorpið í fylgd SOS móður sinnar og sagði hverjum sem á vegi þeirra varð að hún væri að fara í skólann.

Ester í skólabílnumÞegar þær komu í Shashi grunnskólann fengu þær sér sæti og biðu eftir því að Ester yrði kölluð í viðtal. Hún var óneitanlega svolítið stressuð, en nærvera SOS móður hennar gaf henni þann styrk sem hún þurfti á að halda. Loks var Ester kölluð inn og móðir hennar tók þéttingsfast í hönd hennar áður en Ester hvarf henni sjónum.

Fimmtán mínútum síðar kom Ester aftur út með bros á vör. Inntökuprófinu var lokið. Hún þurfti að vísu að bíða í viku eftir niðurstöðunum en hún var þess fullviss að hún myndi komast að í skólanum.

Viku síðar fékk Ester svo staðfestinguna – hún hafði staðist prófið.

11. janúar settist Ester svo loks á skólabekk í Shashi grunnskólanum.  Það var stolt stúlka sem gegg hnarreist í skólann þann morgun í hreinum skólabúningi, í nýpússuðum skóm og með uppáhaldshárgreiðsluna sína.  

Nú er Ester búin að vera í skólanum í tvo mánuði og gengur vel. Hana langar að verða hjúkrunarfræðingur þegar hún verður stór og hjúkra sjúkum í heimahéraði sínu.

„Ester getur vel náð langt í námi,“ segir Charles, sem er kennari sem starfar á vegum SOS Barnaþorpsins og aðstoðar börnin með heimanám o.fl. „Hér fær hún allan þann stuðning sem hún þarf til að geta unnið upp þau fimm ár sem hún missti úr. Og ekki skemmir viðhorf hennar fyrir, hún er mjög ákveðin í að standa sig.“

„Mér finnst frábært að vera komin í skóla því námið á eftir að hjálpa mér að láta drauma mína rætast,“ segir Ester og finnst hún hafa himinn höndum tekið.

 

*Í Simbabve er venjan að börn hefji skólagöngu sína fimm ára gömul.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica