• tpa-picture-43894
    Mæðgin í SOS-flóttamannabúðunum

Hræðileg örlög

1.10.2010

Ljósmyndari á vegum SOS Barnaþorpanna var nýverið á ferð um flóðasvæðin í Pakistan og sendi okkur meðfylgjandi frásögn um örlög fjölskyldu einnar.

Fjölskyldan bjó í þorpinu Khero sem er í um 2.5 klst. asktursfjarlægð frá Larkana. Það var dag einn í byrjun ágúst sem fjölskyldan (foreldrar og átta börn þeirra) tóku eftir því hve mjög hratt hækkaði í lítilli á sem rann nærri þorpinu.

Upp úr miðnætti átti fjölskyldan ekki annarra kosta völ en að flýja heimili sitt vegna vatnsflaumsins. Þau þurftu að hlaupa. Á hlaupunum féll átta ára dóttir hjónanna í vatnið og drukknaði.

Fjölskyldan var nú í kapphlaupi við tímann og lífið sjálft. Þau hlupu á hærra svæði og tóku ekki eftir því í myrkrinu og óðagotinu að annað barn varð viðskila við hópinn. Nú, tæpum tveimur mánuðum síðar veit móðirin ekki enn hvað raunverulega gerðist; hvað varð um barnið.

Litla húsið þeirra eyðilagðist í flóðinu auk þess sem vatnflaumurinn tók sex kýr þeirra og fjórar geitur. Þau eiga nú ekkert nema hvert annað (það sem eftir var af fjölskyldunni), fötin sem þau voru í, skilríki og fjóra kiðlinga sem þau náðu að halda á og taka með sér.

Í tvo daga hélt fjölskyldan kyrru fyrir, ásamt fleirum, undir tré við aðalveginn að þorpinu. Þá kom herinn og bað þau um að koma með sér. Farið var með þau í flóttamannabúðir skammt frá Larkana.

Úr flóttamannabúðumFjöldi flóttamanna í búðunum fór ört vaxandi og ekki leið á löngu þar til herinn flutti hluta fólksins yfir í aðrar búðir. Þær búðir ganga undir nafninu „SOS-flóttamannabúðirnar“ vegna þess að SOS Barnaþorpin gáfu ný tjöld í þær búðir. Í dag búa 2.630 manns í þeim.

Nazira er ein þeirra sem nú býr í SOS-tjaldi ásamt fjölskyldu sinni. Framtíðin leggst ekki vel í hana: „Við misstum allt. Hvernig eigum við að komast af þegar við eigum ekkert?“ Hjálparsamtök standa frammi fyrir gríðarlega stóru og vandasömu verkefni. Milljónir manna eru á vergangi og allir vilja snúa aftur til síns daglega lífs og vinnu, rækta akra sína og sinna fjölskyldu og dýrum; þ.e.a.s. þeim sem ekki urðu flóðunum að bráð.

Fjölskyldan, sem áður taldi tíu meðlimi en hefur nú misst tvö börn, býr í tjaldi í SOS-flóttamannabúðunum og hefur engar tekjur. Þau eru algjörlega háð neyðaraðstoð yfirvalda og samtaka á borð við SOS Barnaþorpin.

Shouked glímir við áfallastreitu og fær grátköst annað slagið. Hann saknar systur sinnar sem dó í flóðinu. Hann segist vera hræddur við vatn eftir þessa reynslu. Hann vill komast sem fyrst í skólann aftur og leika sér við vini sína. Hann veit þó ekki hvort þeir séu lífs eða liðnir.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica