• tpa-picture-43733
    Ómar með bangsanum sínum

Tommi og Jenni í uppáhaldi

15.9.2010

Ómar er tveggja ára. Þegar hann kom fyrst í SOS Barnaþorpið í Bakoteh í Gambíu var hann fölur, veikur, máttvana og innan við tvö kíló að þyngd. Í dag er Ómar í fullu fjöri og mun byrja á leikskóla síðar í mánuðinum.

Starfsfólk SOS sá Ómar fyrst í árslok 2008 þegar félagsmálayfirvöld í Gambíu óskuðu eftir plássi fyrir hann í barnaþorpi. Hann var þá tveggja vikna gamall og ástand hans eins og að framan greinir. Til að byrja með bjó Ómar á ungbarnaheimili SOS áður en hann fékk SOS-móður, -heimili og –systkini.

Raunveruleg móðir Ómars er á lífi en hún glímir við alvarlegan geðsjúkdóm. Hún setti drenginn ekki á brjóst og strax á fyrstu dögunum var ljóst að hún gæti ekki séð um hann. Ómar varð mjög veikur og barðist fyrir lífi sínu. Líkt og hvert annað barn þurfti hann næringu, skjól og umfram allt ást og umhyggju til að lifa af. Yfirvöld sáu að þetta gæti ekki gengið og leituðu til SOS.

Ómar ásamt SOS-systkinum sínumÍ dag á Ómar gott heimili, systkini og móður sem elska hann og sjá til þess að hann fái þörfum sínum mætt. SOS-móðir hans heitir Marie. Hún segir að Ómari finnist skemmtilegast að horfa á Tomma og Jenna og að hann hlæi og hendist til þegar kötturinn og músin hlaupa um í sínum frægu eltingarleikjum.

Hún segir að Ómar eigi að byrja á leikskóla innan fárra daga. „Síðustu daga hef ég reynt að útskýra fyrir honum að hann muni bráðum fara á leikskólann. Þar geti hann leikið sér við öll börnin og lært nýja hluti. Þetta á örugglega eftir að reynast mér erfiðara en honum, ég er svo vön að vera með honum allan daginn. En ég veit að þetta er honum fyrir bestu.“

Ómar er nú í öruggum höndum. Hann á enn langt í land með að verða sjálfstæður ungur maður, en þangað til það gerist fær hann góðan tíma til að undirbúa sig við mannsæmandi aðstæður.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica