• tpa-picture-43779b
    Juan David fékk þá hjálp sem hann þurfti

Kominn á ról

7.9.2010

Juan David er tveggja ára og hefur átt erfitt með gang. Hann er í hópi skjólstæðinga Samfélagsmiðstöðvar SOS Barnaþorpanna í Bogotá í Kólumbíu.

Vöðvar við mjaðmagrind störfuðu ekki sem skyldi með þeim afleiðingum að Juan gat ekki staðið í fæturna. Eftir að móðir hans kom með hann á Samfélagsmiðstöðina fékk hann meðferð við hæfi og er nú ekki aðeins farinn að stíga í fæturna, heldur gengur hann óstuddur.

Þannig lýsir móðir hans ástandinu:

„Juan er tveggja ára og þremur mánuðum betur. Hann hefur átt erfitt með að hreyfa fæturna en er nú í meðferð hjá SOS. Fyrst þegar við komum þangað þurfti ég að halda á honum út um allt enda gat hann ekki gengið, aðeins skriðið.

Juan David við leikÍ dag getur Juan gengið án hjálpar og er það von okkar að í lok þessarar meðferðar muni hann öðlast meira sjálfstraust og fara að leika sér meira við önnur börn. Honum finnst mjög gaman að koma á Samfélagsmiðstöðina og hlakkar til á hverjum morgni.“

SOS Barnaþorpunum er umhugað um réttindi barna; ekki bara þeirra sem búa í barnaþorpunum. Juan David hefur t.a.m. aldrei búið í SOS Barnaþorpi.

Hluti af starfsemi samtakanna felst í því að aðstoða foreldra sem geta ekki mætt þörfum barna sinna. Samtökin leggja áherslu á að öll börn, ekki síst þau sem glíma við fötlun af einhverjum toga, krefjist réttar síns – jafnvel frá eigin foreldrum sem eiga að vernda þau. Þurfi foreldrarnir aðstoð við að mæta þörfum barna sinna eru SOS Barnaþorpin boðin og búin til að veita þá aðstoð.

Til þess eru Samfélagsmiðstöðvar samtakanna og Fjölskylduefling.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica