Hefur alið upp tuttugu og eitt barn
Hún heitir Elvira Imas del Puerto og er SOS-móðir í barnaþorpi í Paragvæ. Hún er fimmtíu og fimm ára og hefur alið upp hvorki fleiri né færri en tuttugu og eitt barn í SOS Barnaþorpinu í Hohenau. Nokkur þeirra eru fötluð.
Níu þessara barna eru nú þegar orðin sjálfstæð en Elvira sér enn um tólf börn. Reyndar er varla hægt að kalla þau öll börn, þar sem þau eru á aldrinum 9 – 28 ára. En það er sérstök ástæða fyrir því að börnin hennar Elviru fá að búa svo lengi í þorpinu.
„Þetta er það besta sem komið hefur fyrir mig – að fá að verða SOS-móðir allra þessara barna og þá sérstaklega fatlaðra barna. Einn drengurinn er döff (heyrnarlaus) og ég fékk því að læra táknmál. Mér fannst erfitt að læra það en sú raun var hverrar mínútu virði því fyrir vikið get ég nú átt samskipti við „son“ minn.
Það er ótrúlega mikilvægt fyrir þessi börn, rétt eins og alla aðra, að geta átt eðlileg samskipti við sína nánustu. Þessi drengur er alveg einstakur og lætur fötlun sína ekki koma í veg fyrir að hann stundi nám. Hann er nú í níunda bekk og ég reyni að útvega honum öll þau tæki og tól sem gætu auðveldað honum námið.

Fjölskylda í SOS Barnaþorpinu í Hohenau
Öll fjölskyldan hefur nú lært táknmál og því geta allir tjáð sig við alla. Þolinmæði er dyggð og við erum fjölskylda. Þess vegna gengur þetta svona vel hjá okkur.“
Elvira á einnig 28 ára gamla fatlaða „dóttur“. Hún er mjög dugleg að hjálpa til á heimilinu. Önnur dóttir Elviru glímir við sjúkdóm í kviðarholi en gengur vel að fóta sig í lífinu, einkum eftir að hún gekk í sérstök stuðningssamtök fyrir fólk með sama sjúkdóm. Elvira fer með henni á fundi í hverjum mánuði og fræðist um sjúkdóminn.
„Við erum rétt eins og hver önnur fjölskylda þó svo að börnin mín séu e.t.v. einstakari en önnur börn. Það sem skiptir mig mestu máli er að þetta eru „börnin mín“ og ég veiti þeim þá umhyggju sem þau þarfnast. Lífið er ekki alltaf auðvelt en mér líður vel með „börnunum mínum“. Mér finnst frábært að fá að vera SOS-móðir.“

SOS Barnaþorpið í Hohenau er staðsett í litlum frumskógarbæ, um 400 km suðaustur af Asunción, höfuðborg Paragvæ. Í barnaþorpinu eru sextán fjölskylduhús þar sem um 140 börn búa. Sum þessara barna eru fötluð eins og fram kemur í textanum hér að ofan.

