Hlekkjaður og niðurlægður
Litli Gídeon* hefur sýnt ótrúlega seiglu eftir að hafa verið bjargað úr „helvíti“. Kornungur að aldri var hann hlekkjaður sem villidýr og mátti þola illa meðferð fósturforeldra sinna. Í dag á hann yndislega fjölskyldu í SOS Barnaþorpinu í Ondangwa í Namibíu.
Báðir foreldrar Gídeons eru látnir þó svo að engin opinber gögn staðfesti það. Hann fæddist í Oshakati í júní 2005. Fljótlega missti hann móður sína og þegar hann var tveggja ára yfirgaf faðir hans hann og tók þá föðurbróðir hans við honum. Næstu ár áttu eftir að verða Gídeon mjög erfið.
Húsmóðirin á heimilinu (eiginkona frændans) leit á Gídeon sem úrhrak og beitti hann miklu harðræði. Gídeon var niðurlægður. Daglega mátti þessi litli drengur þola andlega og líkamlega misnotkun. Stundum var hann neyddur til að vinna á akrinum þrátt fyrir að vera aðeins 3-4 ára og jafnvel dvelja þar heilu næturnar – skjálfandi af kulda. Þá var hann gjarnan festur með keðju við tré og látinn dúsa þar dögum saman.
Barnaverndaryfirvöldum barst tilkynning um slæma meðferð Gídeons en þar sem þau fundu enga aðra ættingja drengsins skikkuðu þau frændann og konu hans til að sjá um hann áfram – þrátt fyrir ábendingar um misnotkun. Dvöl hans í „helvíti“ hélt því áfram. Það var svo ekki fyrr en félagsráðgjafi nokkur frétti af máli drengsins sem hjólin tóku að snúast. Gídeon var tekinn frá frændanum og farið með hann á sjúkrahús þar sem hann fékk viðeigandi meðhöndlun.
Þegar sjúkrahúsið taldi sig ekki geta gert meira fyrir drenginn lét áðurnefndur félagsráðgjafi SOS Barnaþorpið í Ondangwa vita um hann. Eftir ítarlega eftirgrennslan varð úr að Gídeon flutti í barnaþorpið í upphafi þessa árs.
Til að byrja með var Gídeon afar feiminn og til baka. Hann virtist eiga erfitt með mannleg samskipti og talaði ekki einu sinni við hin börnin á heimilinu – nýju systkini sín. Það tók hann þó ekki nema viku að sýna sitt rétta eðli. Hann er nefnilega mjög vingjarnlegur og opinn drengur og hegðun hans er til mikillar fyrirmyndar. Þá á hann mjög auðvelt með að kynnast fólki.
Gídeon hefur nú eignast gott heimili og fjölskyldu sem ber umhyggju fyrir honum. SOS-systkini hans hafa sýnt honum mikinn skilning og veitt honum stuðning. Það er einmitt m.a. fyrir þeirra tilstuðlan sem Gídeon býr nú yfir sjálfstrausti – eiginleika sem án efa mun koma honum áfram í lífinu.
*Ath. Til að vernda drenginn birtum við hvorki mynd af honum, né hans rétta nafn með þessari sögu.


