Sögur

Áhyggjulaus í hoppukastala
Áhyggjulaus í hoppukastala

Börn fái að vera börn

8.3.2010

Nýverið var haldinn svokallaður leikjadagur í SOS Barnaþorpinu í Rustenburg í Suður Afríku. Tilgangurinn: að börnin fái notið þess að vera börn – fjarri hugsanlegum áhyggjum fullorðinsáranna.

Mörg börn í SOS Barnaþorpum koma frá brostnum fjölskyldum. Þau eru því ekki aðeins í þörf fyrir ást og öryggi, heldur þurfa þau einnig að fá að leika sér og njóta þess að vera börn. Sum þeirra voru þjökuð af áhyggjum sökum þess að þurfa að bera ábyrgð á yngri systkinum sínum, þrátt fyrir að vera sjálf aðeins börn að aldri.

Í Rustenburg búa nokkrir systkinahópar, þar sem elsta systkinið bar ábyrgð á yngri systkinum sínum áður en þau komu til SOS. Það getur verið erfitt fyrir þetta elsta systkini að sleppa ábyrgðinni og fela SOS-móðurinni hana.

Oftast er um unglinga að ræða sem aldrei fengu að njóta æskunnar. Þeir urðu fullorðnir allt of fljótt og virðast bera allar áhyggjur heimsins á herðum sér.

SOS-mæðurnar ryðjast ekki inn á valdssvið elsta systkinisins, heldur fara þær rólega í sakirnar og smám saman tekst þeim að taka við ábyrgðinni og þá getur barnið loksins notið þess að vera áhyggjulaust barn – vitandi það að SOS-móðirin sér fyrir þeim og áhyggjur eru óþarfar.

Leikjadagurinn er einn þáttur í þessu ferli.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Rustenburg á einum slíkum degi, þegar börnin voru minnt á það að þau eru börn og mega leika sér!

Leikjadagur í Rustenburg (1)

 

Leikjadagur í Rustenburg (2)



Til baka, Senda grein, Prenta greinina