Sögur

Morris hefur lagt hart að sér við námið. Hér er hann ásamt einkakennara sínum árið 2006.
Morris hefur lagt hart að sér við námið. Hér er hann ásamt einkakennara sínum árið 2006.

Nýtt andlit - nýtt líf

17.2.2010

Morris Otto (18) hefur ekki farið varhluta af erfiðleikum lífsins. Fyrir nokkrum árum fékk hann byssuskot í andlitið og mun alltaf bera þess merki. Uppgjöf er þó ekki að finna í orðabókinni hans og hann ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.

Árið 2002 var Morris rænt af hermönnum Frelsishers Drottins (LRA) frá Norður-Úganda. Hann hlaut herþjálfun og tók þátt í bardögum ásamt fjölda annarra unglinga, sem einnig hafði verið rænt frá fjölskyldum sínum.

Í einum bardaganum var Morris skotinn í andlitið. Farið var með hann til aðhlynningar á heilsugæslu í Úganda en hann fékk ekki þá hjálp sem hann þurfti á að halda. „Þarna hélt ég að líf mitt væri á enda,“ rifjar Morris upp.

Til Nairobi

Starfsfólk SOS Barnaþorpanna fann Morris á heilsugæslunni og fékk að fara með hann til læknismeðferðar í Nairobi í Kenía. Hann eignaðist heimili í barnaþorpinu í Nairobi og SOS-móðirin Gladys tók hann að sér. Á undanförnum árum hefur Morris gengist undir fjölda aðgerða þar sem lýtalæknar hafa mótað andlit hans.

„Ég er þakklátur bæði Guði og SOS Barnaþorpunum,“ segir Morris. „Ef SOS hefðu ekki fundið mig og hjálpað mér væri ég eflaust dáinn núna. SOS-móðir mín og –systkini hafa sýnt mér kærleika sem ég held að fyrirfinnist hvergi annarsstaðar í heiminum.“

Elstur í fyrsta bekk

Morris ásamt forstöðumanni barnaþorpsins árið 2006.Þegar Morris var rænt hafði hann aldrei farið í skóla. Honum bauðst því að hefja nám í fyrsta bekk eftir komuna til Nairobi, þá 13 ára gamall og langelstur í sínum bekk. Með samstilltu átaki SOS og grunnskólans fékk einbeittur Morris þó að fara á hraðferð og kláraði fyrsta bekk mun fyrr en barnungir bekkjarfélagar hans.

Í dag er Morris átján ára og undir stöðugu eftirliti lækna. Með dugnaði er hann nú kominn í áttunda bekk og spurður hvernig sé að vera í bekk með sér yngri krökkum svarar hann: „Aldurinn skiptir ekki máli, heldur hvað þú vilt með líf þitt. Ég veit hvað ég vil og ég ætla mér að ná markmiðum mínum.“

Forstöðumaður barnaþorpsins er ánægður með drenginn. „Þegar við fundum Morris virtist allt vera á móti honum, en hann hefur synt á móti straumnum. Það er aðdáunarvert hve staðráðinn hann var í að ná þangað sem hann er nú.“

Nýtt andlit

Morris er ánægður með sitt nýja andlit og nýja líf. Hann veit vel að ekki eru allir eins og það truflar hann ekkert þó hann sé svolítið öðruvísi en flestir. Hann dreymir um að verða verkfræðingur því hann hefur gaman af að glíma við heilabrot.

En hann dreymir líka um að gera lífið betra í Norður-Úganda. „Ég trúi því að friður muni komast á í landinu, m.a. vegna þess sem ég hef fram að færa. Ég mun láta mig málið varða,“ segir þessi ákveðni ungi maður með nýja andlitið.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina