• Síðasta ljósmyndin? Móðirin ásamt börnunum þremur.
    Síðasta ljósmyndin? Móðirin ásamt börnunum þremur.

Síðasta ljósmyndin?

10.2.2010

Starfsfólk SOS á Haítí ryður sér leið í gegnum tjaldbúðir heimilislausra. Fólk hefur búið í þessum tjaldbúðum allt frá því skjálftinn reið yfir og lifir nánast á loftinu einu. Karlmaður bendir fólkinu okkar á eitt hrörlegasta tjaldið. Þar liggur kona á gólfinu/jörðinni og börnin hennar þrjú, tvær stúlkur og drengur, liggja utan í henni.

Hreyfingar móðurinnar eru hægar en annað slagið fær hún kröftug hóstaköst. Hún er með eyðni og á vart meira eftir en nokkra daga eða vikur. Börnin vita að móðir þeirra er veik og getur ekki séð fyrir þeim. Þrátt fyrir mjög ungan aldur hefur elsta barnið þegar tekið á sig ábyrgð á yngri systkinum sínum.

Starfsfólk SOS útskýrir fyrir móðurinni hver þau eru og við hvað þau starfa. Móðirin hlustar af athygli og segir að börnin eigi frænda sem gæti hugsanlega tekið við þeim þegar ástandið í landinu skánar. En í augnablikinu hefur hún miklar áhyggjur af því hvað verði um börnin ef hún skyldi deyja, ef hún myndi nú ekki vakna í fyrramálið. Hún yrði svo óendanlega þakklát ef hún vissi að börnunum væri óhætt og þau í góðum höndum.

Starfsfólk SOS lofar að annast börnin vel og að frændi þeirra megi heimsækja þau hvenær sem er eða þau hann, allt eftir því hvað henti honum. Móðirin er athugul en þó glittir í veikt bros annað slagið. Hún virðist vita hvað hún vill og byrjar að taka saman nauðsynlega pappíra vegna barnanna. Hún er þess fullviss að börnunum muni líða vel hjá SOS en gerir sér fulla grein fyrir því að hugsanlega muni hún aldrei sjá þau aftur.

Hún segir börnunum að hún vildi gjarnan fara með þeim en hafi ekki styrkinn til þess. Hún segir að frændi þeirra muni koma og kíkja á þau og ef hún sjálf hressist muni hún líka heimsækja barnaþorpið.

Þegar allt er til reiðu sest hún upp og biður um að tekin verði mynd af sér með börnunum. Því næst kveður hún börnin með brosi sem hugsanlega verður síðasta minning þeirra um móður sína.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica