Sögur

Noelle í fangi afa síns
Noelle í fangi afa síns

Úr húsarústum í barnaþorp

5.2.2010

Í þröngu stræti einu í Port-au-Prince höfuðborg Haítí, fann starfsfólk SOS Barnaþorpanna á Haítí þrjú lítil systkini sem höfðu orðið munaðarlaus í jarðskjálftanum 12. janúar sl.

Maður nokkur sem vissi um börnin náði athygli starfsmanna SOS og benti þeim á viðverustað þeirra. Afi barnanna hafði leitað skjóls með þau í norskum skóla og þar kúrðu þau undir plastdúk.

Systkinin – tvíburarnir Antoine og Anais (1) og eldri systir þeirra Noelle* (2) – bjuggu í Port-au-Prince ásamt móður sinni en faðir þeirra hafði látist nokkrum mánuðum áður. Þegar skjálftinn reið yfir voru þau öll fjögur í íbúð sinni á annarri hæð. Einn veggurinn hrundi og móðir barnanna grófst undir rústunum. Loksins þegar hjálp barst var það um seinan, hún var látin.

Ung stúlka sem alist hefur upp í SOS Barnaþorpinu í Santo heldur á öðrum tvíburanumÞótt ótrúlegt megi virðast slösuðust börnin ekki heldur hrundi veggurinn allt í kringum þau. Líklega hefði farið verr ef börnin hefðu verið stærri. Afi þeirra kom að og byrjaði strax að grafa í rústunum með berum höndum og náði að draga öll börnin þrjú út heil á húfi. Noelle hlaut skrámur á handlegg við björgunaraðgerðirnar en ekkert sást á tvíburunum.

Næstu daga á eftir annaðist afinn börnin og nauð aðstoðar starfsfólks norska skólans. Sökum aldurs og fátæktar treysti afinn sér hins vegar ekki til að annast þrjú ung barnabörn sín til frambúðar.

Noelle kallar enn á móður sína. Þegar bifreið SOS ók með þau burt úr hverfinu urðu börnin stjörf og tóku að gráta. Hristingurinn á grófum malarveginum hafði fengið þau til að Youtubeendurupplifa jarðskjálftann.

Í meðfylgjandi Youtube-myndbandi er m.a. fjallað um systkinin.

*Ekki rétt nöfn barnanna



Til baka, Senda grein, Prenta greinina