Felix er búinn að ná sér í konu
Felix er 26 ára og nýkvæntur. Hann var fyrsta barnið á sínum tíma sem eignaðist heimili og móður í SOS Barnaþorpinu í Puerto Varas í Chile.
Allir í barnaþorpinu í Puerto Varas vita hver Felix er. Starfsfólkið man eftir honum sem líflegum, allt að því óþekkum, dreng sem var alltaf á fleygiferð um þorpið. Þegar Felix kom fyrst í barnaþorpið var hann óöruggur og treysti engum. En hann vandist lífinu í þorpinu fljótt og náði að tengjast SOS-móður sinni sem studdi hann með ráðum og dáðum.
Starfsfólkið man líka eftir Felix sem snjöllum og metnaðarfullum dreng. Og nú hefur hann náð tveimur mikilvægustu markmiðum lífs síns; hann veit hvað hann ætlar að starfa við og er búinn að eignast eigin fjölskyldu.
„Sá sem ekki setur sér markmið er ekki venjuleg manneskja heldur einhver sem lifir bara frá degi til dags,“ segir Felix ákveðinn. Um þátt SOS fjölskyldu hans í uppvextinum segir hann: „Ég er mér meðvitaður um þau tækifæri og þann stuðning sem ég hef fengið frá fjölskyldu minni í SOS Barnaþorpinu. Ég lærði að takast á við mótlæti lífsins, meta aðstæður, skoða sjálfan mig og vita hver ég er, hvað ég á og hvað ég get gert.“
Fyrir nokkru síðan kynntist Felix Christinu, fallegri ungri konu frá Þýskalandi og ákváðu þau að stofna fjölskyldu. Þau giftu sig fyrir nokkrum mánuðum og fór athöfnin fram á æskuslóðum hans; í SOS barnaþorpinu.
Nú eru hveitibrauðsdagarnir að baki og lífsbaráttan tekin við. Ungu hjónin búa nú í Þýskalandi þar sem Felix stundar framhaldsnám. Þrátt fyrir fjarlægðina frá Chile er Felix í góðu sambandi við barnaþorpið, SOS-móður sína og –systkini sem búa enn í þorpinu.

