Rúmteppi og gardínur til bjargar fjölskyldunni
Zipporah* er bæði móðir og amma. Hún vó aðeins 39 kíló þegar hún gerðist skjólstæðingur Fjölskyldueflingar SOS í Nairobi í Keníu. Nú er hún 75 kíló og farin að sauma teppi og gardínur.
Zipporah var ófrísk þegar hún missti eiginmann sinn í ágúst árið 1997. Hún hafði selt kryddjurtir til að afla heimilinu tekna og vissi ekki að eiginmaður hennar var með alnæmi fyrr en eftir dauða hans.
Zipporah fór í alnæmispróf og reyndist vera jákvæð með lága CD4 talningu (hvít blóðkorn sem eru mikilvæg ónæmiskerfi líkamans). Hún var grindhoruð, aðeins 39 kíló, og sá um uppeldi fjögurra barna sinna og tveggja barnabarna. Börnin hennar mættu óreglulega í skóla sökum fátæktar.
Læknisaðstoð og næringarráðgjöf
Strax og Zipporah gekk í Fjölskyldueflingu SOS fékk hún ókeypis læknisaðstoð fyrir sig, börnin og barnabörnin. Sonur hennar fékk skólabúning og námsgögn til að geta hafið nám. Þá var gerð sérstök næringaráætlun fyrir Zipporuh sem fól í sér ráðgjöf og fæði, en mikilvægt er að alnæmisskjúklingar í lyfjameðferð neyti réttrar fæðu. Og til að hjálpa Zipporuh að bæta fjárhag sinn fékk hún örlán hjá SOS svo hún gæti aukið viðskiptin.
Frá því að Zipporah gerðist skjólstæðingur Fjölskyldueflingar hefur CD4 talning hennar aukist og almenn heilsa hennar batnað. Hún hefur einnig bætt nokkuð á sig og er í dag um 75 kíló.
Zipporah sýndi áhuga á að læra að sauma og árið 2008 hóf hún helgarnám við Verknámsskóla SOS í Nairobi. Skólann getur allt handverksfólk sótt sem áhuga hefur á að bæta hæfni sína á ákveðnu sviði.
Vandað handverk
Námið stóð í eitt ár og er Zipporah nú farin að selja gardínur og rúmteppi sem hún sjálf hefur saumað og þykja vönduð. Hún hefur ekki enn fjárfest í saumavél heldur saumar allt í höndunum. Af þeim sökum tekur það hana drjúgan tíma að sauma hvert teppi. En viðskiptin ganga vel og hún hefur þegar endurgreitt lánið sem hún fékk hjá SOS. Og vegna þess hve vel henni hefur gengið að ná tökum á lífinu og fjárhaginum er hún í hlutastarfi hjá Fjölskyldueflingu SOS og aðstoðar illa staddar barnafjölskyldur og miðlar af eigin reynslu.
Zipporah er nú með áform um að kaupa saumavél sem mun auðvelda henni saumavinnuna til muna. Þá hefur hún einnig áhuga á að opna eigin saumastofu.
*Ekki hennar rétta nafn

