• Rigningin getur verið góð!
    Rigningin getur verið góð!

Mér finnst rigningin góð

6.1.2010

Í Gambíu stendur regntímabilið yfirleitt yfir frá júní til október. Þá rignir allhressilega og eldingar lýsa upp Afríkuhimininn með tilheyrandi sjónarspili. Við spurðum nokkur börn og SOS-móður hvað væri gott og slæmt við rigninguna. Þau höfðu þetta að segja...

Gott

Mér finnst gaman þegar rignir! Þá get ég farið í sturtu úti. - Isnaba, 7 ára drengur

Mér finnst líka gaman að fara í sturtu í rigningunni. Besti staðurinn er undir þakskegginu því þar kemur svo mikið vatn niður. Það er næstum því betra en sturtan inni. – Baboucarr, 13 ára drengur

Rigningin er góð fyrir uppskeruna. Þá vex allt svo hratt. – Baboucarr, 12 ára drengur

Hvað finnst mér best við regntímabilið? Allt vatnið! Mér finnst allt í lagi að blotna. Kannski hefur maður bara vanist því vegna þess að maður getur ekki annað en gert það sem þarf að gera, líka þegar rignir. Svo er rigningin góð fyrir grænmetisgarðinn og ég þarf ekki að vökva á hverjum degi. – Rose, SOS-móðir

Slæmt

Allt verður svo skítugt. – Isnaba, 7 ára drengur

Við verðum rennandi blaut á leiðinni heim úr skólanum, jafnvel þó við séum með regnhlíf! – Elizabeth, 8 ára stúlka

Regntímabilið getur verið hættulegt! Um daginn fauk internet-loftnetið í þorpinu niður í einum storminum. Það var við hliðina á húsinu okkar og sem betur fer datt það frá húsinu en ekki á það. Og sem betur fer slasaðist enginn. – Baboucarr, 13 ára drengur

Ég verð oft veikur á regntímabilinu. – Oumie, 10 ára stúlka

Fötin ná ekki að þorna! – Rose, SOS-móðir

Hvað gera börnin þegar rignir?

Ég sit inni og horfi á rigninguna. Isnaba, 7 ára drengur

Ég horfi á sjónvarpið. – Oumie, 10 ára stúlka

Ég fer í leiki með systkinum mínum. Annað hvort spilum við á spil eða heimatilbúið Lottó. – Baboucarr, 13 ára drengur

Ég læri! – Baboucarr, 12 ára drengur

Rigningin getur verið góð!






Þetta vefsvæði byggir á Eplica