• tpa-picture-39312
    Putri í fangi móður sinnar

Tsunami stúlkan - fimm árum síðar

23.12.2009

Þorpið Gampong Cot á suður Indónesíu þurrkaðist nánast út í flóðbylgjunni á annan dag jóla 2004. Fyrir hamfarirnar voru íbúar þorpsins um 600 talsins. Í dag eru íbúarnir aðeins um 350 og margir þeirra nýlega aðfluttir. Yfir 75% þorpsbúa dóu í flóðbylgjunni. Ibu Sarjani og dóttir hennar Putri eru í hópi þeirra sem lifðu af.

Jafnvel þó fimm ár séu liðin frá hörmungunum getur Ibu ekki enn talað um það sem gerðist umræddan dag. Dagarnir á eftir eru þeir erfiðustu í lífi hennar. Aðeins tveir einstaklingar þekkja sögu Ibu nógu vel til að geta sagt hana. Það eru Yudi, forstöðumaður SOS Barnaþorpsins í Meulaboh og Rafi, þorpshöfðingi Gampong Cot. Ibu ræðir við þá um daglegt líf sitt og litlu Putri, dótturina sem hún elskar svo mikið og er rétt að ná sér eftir mislinga.

tpa-picture-39315

Mæðgurnar fyrir utan nýja heimilið

Ibu hræðist hafið. Hún og fjölskylda hennar bjuggu við ströndina en nýja húsið sem hún og Putri fluttu inn í vorið 2006 er í nokkurri fjarlægð frá ströndinni. Húsið er eitt 132 nýrra húsa sem SOS samtökin reistu fyrir fjölskyldur í Gampong Cot í kjölfar Tsunami.

26. desember 2004 var Ibu að þrífa litla kofann sinn og átti von á sér hvað og hverju. Hún leit út á hafið og sá að það var ekki alveg eins og það átti að vera, það var stór flóðbylgja á leið að landi. Hún hljóp í átt frá hafi og hélt að sonur hennar og dóttir væru örugg með eiginmanni sínum Adnan. Þegar hún kom að þorpsmoskunni gerði hún sér grein fyrir að flóðið myndi ná henni svo hún klifraði upp í tré við hlið moskunnar og þaðan upp á þak hennar. Flóðbylgjan ruddist langt inn á land með ógnarkrafti og náði nærri upp á þak moskunnar. Síðan fjaraði vatnið út en þó var áfram um 1.5 metra djúpt vatn umhverfis moskuna. Ibu gat sig því hvergi hreyft og skyndilega byrjaði hún að fá hríðir. Hún eignaðist dóttur á þaki moskunnar þennan dag.

tpa-picture-39308

Fæðingarstaður Putri

Undir kvöld hafði yfirborð vatnsins lækkað mjög og setti Ibu þá nýfædda dóttur sína í plastpoka sem hún fann og gekk í gegnum rústir þorpsins í átt að spítalanum. Seint um kvöldið fann hún eiginmann sinn en börnin þeirra tvö voru ekki með honum. Þau höfðu bæði týnt lífi í flóðbylgjunni. Ibu og Adnan ákváðu að gefa nýfæddri dótturinni nafnið Putri Sunami Irayana. Á tungumáli þeirra þýðir Putri stúlka og Irayana þýðir stór alda.

Adnan, faðir Putri, lést rúmlega tveimur árum eftir Tsunami. Banamein hans var alvarleg sýking sem hefur líklega orsakast af menguðu drykkjarvatni.

Hjónin náðu þó að flytja inn á nýtt heimili og búa þar í nokkra mánuði áður en Adnan lést. Áður höfðu þau búið í bráðabirgðahúsnæði úr plastdúkum. Nýja húsið var byggt og gefið af SOS Barnaþorpunum. Það er með litla yfirbyggða verönd og nógu stóran garð til að rækta grænmeti og ávexti fyrir fjölskylduna. Þær Ibu og Putri virðast hafa það gott í nýja húsinu í öruggri fjarlægð frá ströndinni. Hörmungar fortíðarinnar eru þó ekki gleymdar.

tpa-picture-39310

Stolt á bleika hjólinu

Putri finnst gaman að hjóla á bleika hjólinu sínu í kringum húsið. Eins finnst henni gaman að teikna. Hún er í leikskóla og er svo heppin að móðir hennar starfar við þann sama leikskóla. Putri er yfirleitt glaðbeitt. Henni finnst þó erfitt að kveðja Yudi, en hún laðast mjög að þessum forstöðumanni barnaþorpsins í Meulaboh sem kemur reglulega við hjá þeim til að athuga hvernig þær mæðgur hafa það.

Fyrir flóðbylgjuna miklu vissi enginn í Gampong Cot hvað SOS Barnaþorpin voru. En í dag kemur fólk jafnvel frá Banda Aceh til að skoða barnaþorpið. Það vill sjá þessi umtöluðu hús sem byggð hafa verið samkvæmt háum gæðastöðlum og kynna sér starfsemi SOS á svæðinu. Samtökin hafa einnig byggt þar samfélagsmiðstöð; „Hermann Gmeiner húsið“, sem hýsir leikskóla og grunnskóla. Auk þess fá fjölskyldur hjálp til að afla sér tekna, einkum með framleiðslu handverks. Þá býðst fjölskyldum á svæðinu einnig stuðningur og upplýsingar um mennta- og heilbrigðismál ásamt öðrum málum sem fjölskyldurnar eru að glíma við.

Fjölmörg börn á Meulaboh svæðinu njóta stuðnings Fjölskyldueflingar SOS og annarra stuðningsverkefna sem yfirvöld hafa nú tekið yfir. Mörg þeirra barna sem búa í SOS Barnaþorpinu í Meulaboh misstu fjölskyldur sínar í flóðinu. Önnur hafa fengið inni í barnaþorpinu vegna þess að fjölskyldur þeirra sundruðust annað hvort vegna hörmunganna eða átaka sem hafa staðið í héraðinu í um þrjá áratugi.

SOS mæðurnar sem tekið hafa að sér börn í barnaþorpinu hafa svipaða sögu að segja og börnin sjálf. Flestar þeirra hafa misst eiginmenn sína, börn og jafnvel alla sína nánustu ættingja. Sumar þeirra hafa enn ekki treyst sér til að ræða það sem gerðist hinn örlagaríka dag árið 2004 og breytti lífi þeirra.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica