• Jullie Ann
    Jullie Ann

Jullie Ann svarar spurningum um jólin

5.12.2009

Jullie Ann er 10 ára og býr í SOS Barnaþorpinu í Iloilo á Filippseyjum. Hún var nýverið spurð nokkurra spurninga um jólin.

Færðu jólagjafir?

Já, nemendur úr nágrannaskólum koma með gjafir til okkar á jólunum. Þeir undirbúa leiki fyrir okkur og svo leikum við okkur saman. Við borðum líka saman.

 

Hvers óskarðu þér heitast þessi jól?

Mín heitasta ósk er að ég fái að hitta pabba aftur. Ég ólst upp án hans.

 

Hvað verður í matinn hjá ykkur á jólunum?

Við fáum spaghettí, kökur, ávexti, steiktan kjúkling og fullt af nammi; við skiptumst á nammi á Noche Buena (jóladagskvöld).

 

Hvernig skreytið þið húsið?

Við skreytum heimilið eins vel og við getum. Við setjum upp jólatré í stofuna, parol (hefðbundin filippseysk lukt) á veröndina og jólaljós í gluggana.

 

Hvert er uppáhalds jólalagið þitt?

Uppáhalds jólalagið mitt er Pagsapit ng Pasko (Á jólum). Það er mjög fallegt.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica