• Eldri bræður kenna yngri bróður sínum að hjóla
    Eldri bræður kenna yngri bróður sínum að hjóla

Dylan (5) lærir að hjóla

26.11.2009

Þetta byrjaði allt þegar Dylan litli sá reiðhjól bróður síns. Á því augnabliki var hann staðráðinn í að læra að hjóla. Hann gerði nokkrar tilraunir, en án árangurs. Hann langaði bara að læra að hjóla eins og stóru krakkarnir. Og einmitt þá birtist hjálpin, þegar hann þurfti mest á henni að halda.

Dylan er fimm ára og býr í SOS-barnaþorpinu í Lujan í Argentínu. Hans eina fjölskylda er SOS fjölskylda hans. Hann á enga aðra að.

Draumur Dylans um að læra að hjóla breyttist þó í martröð. Hann datt ítrekað af hjólinu og virtist ekki ætla að hafa erindi sem erfiði. En þá birtust tvær hetjur sem hjálpuðu honum: eldri bræður hans þeir Agustin (9) og Lautaro (7).

Fyrsta tilraunin gekk vægast sagt illa. Dylan náði ekki einu sinni að setjast á hnakkinn þar sem hjólið var nokkrum númerum of stórt fyrir hann. Þegar hann loks náði að setjast á hnakkinn náði hann varla niður á fótstigin. En Dylan var staðráðinn Það getur tekið á að læra að hjólaí að gefast ekki upp og það kom að því að hann náði að renna um einn metra á hjólinu.

En í kjölfar þess áfangasigurs fylgdu vonbrigði því Dylan missti jafnvægið og féll af hjólinu. Hann reiddist mjög og var að því kominn að fara að gráta því hann hafði meitt sig í fætinum en ákvað þess í stað að halda áfram. Og þá komu eldri bræður hans til sögunnar.

Þeir höfðu horft á Dylan detta af hjólinu og ákváðu að hjálpa honum. Fyrst kenndu þeir honum hvernig maður fer á hjólið. Það reyndist Dylan ekki auðvelt en með stóran bróður sér til sitthvorrar handar tókst honum að halda sér á hjólinu.

Drengirnir ýttu nú litla bróður sínum á hjólinu og fljótlega var nóg að annar þeirra væri til staðar. Dylan var farinn að halda jafnvægi og rann nokkra metra á hjólinu. Honum hafði tekist það! Bræður hans horfðu á hann renna sér á hjólinu og síðar hjóla stoltur um þorpið.

Nokkrir mánuðir eru liðnir frá því að Dylan lærði að hjóla og í dag finnst honum það ekkert mál. Hann á það til að efna til hjólreiðakeppni meðal barnanna í þorpinu og hann stendur þeim mörgum fyllilega á sporði þrátt fyrir ungan aldur.

map_argentina_en_HR1

Fjögur SOS-barnaþorp eru í Argentínu. Þorpið hans Dylan er í Lujan, skammt frá höfuðborginni Buenos Aires.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica