Bettý - lítil saga frá Úganda
Í æsku bjó Bettý við mikil þægindi, einkum miðað við stöðu hennar í dag. Undanfarin 20 ár hefur hún upplifað blóðugt stríð og mikla útbreiðslu alnæmis í héraði sínu í norður Úganda og nú er svo komið að hún sér um fimm barnabörn sín.
Bettý er skjólstæðingur Fjölskyldueflingar SOS og nýtur aðstoðar við að sjá fyrir barnabörnunum og tryggja framtíð þeirra.
Faðir Bettýjar var höfðingi á staðnum. Á nýlendutímabilinu kom fjöldi Evrópubúa í heimsókn til hans til að veiða fíla, sem nóg var af á svæðinu. Þegar maður sér Bettý í dag er ekkert sem bendir til þess að hún eigi sér fortíð í vellystingum. Hún er nú einn af fjölmörgum skjólstæðingum Fjölskyldueflingar SOS í Gulu í Úganda. Fjölskyldueflingin styður við barnafjölskyldur sem eiga á hættu að sundrast (sem þýðir í raun að þessi börn eru í mikilli hættu á að verða umkomulaus). Þegar aldur Bettýjar og erfið staða hennar eru höfð í huga er auðvelt að skilja hvers vegna Fjölskylduefling SOS tók hana undir verndarvæng sinn.
Bettý flýr til Gulu
Bettý giftist manni úr nágrannahéraði og eignaðist sitt fyrsta barn árið 1962, sama ár og Úganda öðlaðist sjálfstæði. Mikið óöryggi ríkti í héraðinu og vopnuð átök voru tíð. Bardagar stjórnarhersins við sveitir LRA (Lords Resistance Army) í norðurhluta landsins kostuðu mörg líf og skildu eftir sig djúp sár bæði á líkama og sál þeirra sem eftir lifðu. Morð og nauðganir voru daglegt brauð og enginn var óhultur. Jafnvel börn voru tekin frá fjölskyldum sínum af liðsmönnum LRA og þau þjálfuð upp sem stríðsmenn, eiginkonur eða þrælar. Bettý flýði þetta ástand til bæjarins Gulu þar sem dóttir hennar eignaðist lítinn landsskika og varð fimm barna auðið. Lífsbaráttan var þó áfram hörð.
Eftirlifendur þjást
Bettý og fjölskylda hennar komust af með því að halda kyrru fyrir á heimili þeirra á daginn en fela sig í trjágróðri í nágrenninu á næturnar. Þetta voru gríðarlega erfiðir tímar fyrir alla í héraðinu og þeir sem komust af urðu fyrir miklum sálrænum áföllum. Jafnvel enn í dag, tveimur árum eftir að friður komst á í Gulu, líða íbúar bæjarins miklar þjáningar vegna þess sem gerðist. En þrátt fyrir betri tíð varð Bettý fyrir miklu áfalli þegar dóttir hennar dó og hún neyddist til að ganga fimm barnabörnum sínum í móðurstað.
Barnabörnin fara í skóla
Elsta barnabarn Bettýjar er Óskar. Hann er tvítugur og fékk fyrir tilstuðlan Fjölskyldueflingar SOS að fara í tækniskóla. Hann er nú með fasta vinnu hjá malara í bænum og sér fyrir sér sjálfur. Bettý fékk nokkur svín frá Fjölskyldueflingunni sem hún ræktar og selur. Skólagjöld yngri barnanna fjögurra eru greidd fyrir Bettý og svo verður áfram þar til hún verður fær um það sjálf.
Litla Bettý sem skemmti nýlenduherrum á fílaveiðum um miðja síðustu öld er nú orðin gömul kona sem sá fram á að verja ævikvöldinu í áhyggjur af því hvernig barnabörnum hennar muni reiða af þegar hún kveður. Bettý þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því þar sem hún veit að börnin hennar verða ekki umkomulaus eftir hennar dag. Þau verða undir verndarvæng SOS þar til þau verða orðin fullorðin og geta séð um sig sjálf.
Ath. Myndirnar eru ekki af fjölskyldu Bettýjar, heldur öðrum skjólstæðingum Fjölskyldueflingar í Gulu.


