• Noemie hefur m.a. tekjur af því að selja viðarkol. Hér er hún ásamt tvíburadætrum sínum.
    Noemie hefur m.a. tekjur af því að selja viðarkol. Hér er hún ásamt tvíburadætrum sínum.

Ég er ótrúlega þakklát

9.11.2009

Noemie er 28 ára einstæð þriggja barna móðir í Líberíu. Sem barn var hún neydd til að stunda vændi og á fullorðinsárunum kunni hún engin önnur bjargráð en að selja sig. En líf hennar tók nýja stefnu þegar hún gerðist skjólstæðingur Fjölskyldueflingar SOS.

Noemie býr í höfuðborginni Monróvíu. Móðir hennar hefur aldrei sinnt henni almennilega og nú þegar hún er sjálf orðin móðir vill hún að börnin hennar eigi betri æsku en hún sjálf átti.

Í æsku

Sú æskuminning sem stendur uppúr hjá Noemie er þegar móðir hennar fékk greitt frá fullorðnum mönnum sem misnotuðu sér ungan aldur, sakleysi og fegurð hennar. Og þegar kom að því að vinna fyrir sér kunni Noemie ekkert annað en að selja karlmönnum aðgang að líkama sínum.

„Stundum var ég heppin og fékk hvítan viðskiptavin. Þá fékk ég allt að 20 dollurum sem var mjög mikið fyrir mig,“ segir þessi unga kona sem stundaði vændi í mörg ár. Dag einn uppgötvaði hún að hún var ófrísk. Hún eignaðist yndislega stúlku og fór strax aftur út á götu í leit að viðskiptavinum á meðan móðir hennar sá um litla barnið.

Aðeins nokkrum mánuðum eftir að Noemie eignaðist stúlkuna varð hún aftur ófrísk og nú að tvíburum. Lífið lék svo sannarlega ekki við hana, eða eins og hún segir sjálf „Enginn karlmaður vill ófríska konu“. Hún neyddist því til að hætta vændinu.

Noemie eignaðist tvíburana. Þetta voru yndislegar stúlkur en faðirinn var hvergi inni í myndinni. Móðir Noemie snéri baki við henni og börnunum vegna þess að Noemie hafði engar tekjur lengur og var aðeins byrði fyrir hana. Nú var Noemie ein á báti og gat ekki snúið aftur í vændið með þrjú börn – og það elsta eins og hálfs árs! En í stað þess að gefast upp fór Noemie aftur að stunda vændið eftir að dæturnar voru sofnaðar á kvöldin. Það var hennar eina leið til að lifa af.

SOS

Noemie frétti af samfélagsmiðstöð SOS í Monróvíu og var sagt að þar gæti hún örugglega fengið mat og lyf fyrir börnin*. Hún fór að venja komu sína á samfélagsmiðstöðina til að fá matarpakka fyrir dæturnar þrjár og áhyggjur félagsráðgjafans af fjölskyldunni fóru vaxandi. Noemie þvertók hinsvegar fyrir það að hún þyrfti frekari hjálp.

Dag einn í fyrra (2008) ákvað félagsráðgjafi SOS að heimsækja hverfi Noemie. Nágrannar hennar sögðu þá frá því hvernig hún annaðist dæturnar þrjár á daginn en læsti þær inni á kvöldin til að selja sig á götum úti. Eftir mörg samtöl við félagsráðgjafa viðurkenndi Noemie loksins hvernig lífi hún lifði og félagsráðgjafinn gat loks útbúið áætlun til hjálpar henni og dætrunum.

Í ljós kom að Noemie hafði fengið ítrekaðar martraðir og átti það til að segja hluti sem enginn skyldi. Einn daginn kom hún á samfélagsmiðstöðina ásamt dætrum sínum en gleymdi að taka þær með sér þegar hún fór heim. Þegar hér var komið sögu ákváðu sérfræðingar SOS að hafa samband við barnaverndaryfirvöld til að tryggja öryggi barnanna. Noemie fékk skipulagða ráðgjöf félagsráðgjafa SOS, prests og geðheilbrigðisstarfsfólks. Meðferðin tók þrjá mánuði og á meðan fengu dætur hennar að búa í SOS-barnaþorpinu í Monróvíu.

Að meðferðatímanum loknum sótti Noemie dætur sínar í barnaþorpið og var staðráðin í að hefja nýtt líf. Hún sótti námskeið í samfélagsmiðstöð SOS þar sem hún lærði að lesa og skrifa. Dætur hennar eru nú fjögurra og fimm ára og eru allar í leikskóla auk þess sem þær njóta góðrar læknisþjónustu.

Noemie fékk ráðgjöf í rekstri lítilla fyrirtækja svo hún gæti aflað sér og dætrum sínum tekna með heilbrigðum hætti. Hún er þegar farin að selja inniskó, snyrtivörur og viðarkol.

Þegar Noemie fer um borgina í söluferðum sínum kemur hún stundum við á samfélagsmiðstöðinni til að heilsa uppá kunningja sína og þakka fyrir þann stuðning sem hún fékk.

Í dag er Noemie það sem kalla mætti eðlilega móður. Hún hefur tekjur og þarf því ekki lengur að skilja börnin eftir ein heima á kvöldin. Fjölskyldueflingin bjargaði henni og dætrum hennar þremur.

* Auk þess að reka fjölskyldueflingu geta samfélagsmiðstöðvar SOS hjálpað illa stöddum fjölskyldum í neyð með þurrmjólk, mat, notuð barnaföt o.fl. Þeir sem eru fátækastir og í mestri þörf fyrir læknisþjónustu geta fengið ókeypis þjónustu á heilsugæslu SOS-barnaþorpanna sem er staðsett á sama stað og samfélagsmiðstöðin.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica