Ræktar maís fyrir barnaþorpið sitt
Tadeyo var einn af fyrstu börnunum til að flytja í SOS-barnaþorpið í Lilongwe í Malaví árið 1994. Hann var þá sex ára og kom þangað ásamt tveimur yngri bræðrum sínum.
Strax við komuna í barnaþorpið sýndi Tadeyo mikinn áhuga á akurrækt og eyddi miklum tíma í matjurtargarði SOS-móður sinnar.
Að gagnfræðaskólanámi loknu hóf Tadeyo nám við verknámsskóla SOS í Lilongwe í júní 2008. Þar lærði hann hitabeltis akuryrkju í eitt ár.
Eftir að hann útskrifaðist úr verknámsskólanum bauðst hann til að rækta maís fyrir ungmennaheimili SOS í Lilongwe. Reyndar ákvað forstöðukona SOS-barnaþorpsins að hvetja allar SOS-mæður til að rækta meira sjálfar þar sem verðhækkanir og efnahagskreppa voru að gera íbúum Malaví lífið leitt, líkt og víðar. Og svo fékk hún Tadeyo til að hafa yfirumsjón með maísræktinni og gefa mæðrunum góð ráð.
Og nú er fyrsta uppskeran komin í hús. Hver SOS-móðir fékk um tuttugu 50 kílóa sekki sem dugar fjölskyldunum í barnaþorpinu og rúmlega það – og er þó borðaður mikill maís í Malaví.
Og Tadeyo er ekki hættur heldur hefur hann nú sett stefnuna á háskólanám í akuryrkju. Við óskum honum góðs gengis í náminu.

