Dagur í lífi SOS-mæðra
Í SOS-barnaþorpinu í Rustenburg í Suður Afríku búa yfir 75 börn sem SOS-mæður hafa gengið í móðurstað. Hér gefa þrjár slíkar mæður okkur örlitla innsýn í daglegt líf sitt.
Portia
„Ég fer á fætur klukkan fimm á morgnana, fer í sturtu og undirbý morgunmatinn fyrir börnin. Klukkan hálf sex vek ég börnin svo þau geti gert sig klár fyrir skólann en sum þeirra eru mjög hæg á morgnana.
Þegar börnin eru búin að þvo sér og klæða sig athuga ég hvort allt sé til reiðu fyrir skóladaginn; hvort skólabúningurinn sé klár, hárið greitt o.s.frv. Svo borða allir morgunmat saman. Þegar skólabíllinn kemur verða allir að vera tilbúnir. Ég fer út með þeim og sé til þess að þau gleymi hvorki nestinu né neinu öðru.“
Bitsang
„Við fylgjum leikskólabörnunum í leikskólann. Við mæðurnar hjálpumst að og stundum förum við með börnin í leikskólann en stundum erum við heima með yngstu börnin. Börnin þurfa svo reglulega að fara á heilsugæsluna í reglubundnar athuganir og bólusetningar eða vegna veikinda. Þar sem SOS-heimilin eru byggð á víð og dreif í hverfinu en ekki í hnapp reynist okkur auðvelt að skreppa út á götuhorn og taka leigubíl í miðbæinn ef við eigum erindi þangað.“
Matise
„Við þvoum þvott annan hvern dag og auðvitað höldum við heimilunum hreinum og eldum mat. Við skipuleggjum daginn þannig að við getum hvílt okkur aðeins seinnipart dags áður en börnin koma heim úr skólanum. Þegar þau koma heim setjumst við niður með þeim og ræðum málin, hlustum á vandamál séu þau einhver og viðhöldum sterkum persónulegum tengslum við börnin.
Um helgar hjálpa börnin okkur við heimilisstörfin og leika sér við börnin í hverfinu, bæði SOS-börn og önnur börn. Stundum förum við með börnin í almenningsgarðinn. Á sunnudögum förum við í kirkju og borðum svo hádegismat í rólegheitunum og hlustum á gospel tónlist.
Við mæðurnar fundum reglulega með forstöðumanni þorpsins og félagsráðgjafa og sækjum námskeið. Stundum hittumst við mæðurnar á sér fundum. Við fræðumst mikið um umönnun barna, heimilisfjármál, réttindi barna og sjálfsstyrkingu – og við höfum mjög gaman af.“
