Fimm tvíburar í sama barnaþorpinu
Þegar maður gengur um barnaþorpið í Livingstone í Sambíu gæti maður staðið sig að því að nudda augun eða telja sig sjá tvöfalt. Ástæðan er sú að í barnaþorpinu búa fimm tvíburar!
Eineggja og tvíeggja, strákar og stelpur, smábörn og börn á skólaaldri, ekki vantar fjölbreytnina. Engin augljós skýring er á því hvers vegna svo margir tvíburar hafa ratað í þorpið en þessi tíu börn setja svo sannarlega mark sitt á þorpslífið.
Emma og Ester eru fjögurra ára. Maður gæti haldið að þær væru yngri vegna þess að við komuna í þorpið voru þær vannærðar og mjög litlar eftir aldri. Og þrátt fyrir að vera enn smáar í sniðum hafa þær bætt töluvert á sig eftir að þær komu í þorpið og læknar eru hættir að hafa áhyggjur af þeim.
Ester er róleg en Emma telst vera skapstór. Þær ná þó mjög vel saman og vilja frekar leika við hvora aðra en önnur börn.
Júlíus og Júlía eru ellefu ára og dugleg við að hjálpa SOS-móður sinni á heimilinu. Þau hafa bæði mjög gaman af íþróttum og þá sérstaklega blaki. Það fer minna fyrir Júlíu en bróður hennar og stundum mætti halda að hann væri talsmaður þeirra beggja.
Kristján og Jóhann eru, líkt Júlíusi og Júlíu, ellefu ára og duglegir við að hjálpa móður sinni. Þeir eru mikið í fótbolta og gengur báðum mjög vel í skóla. Jóhann getur verið nokkuð stríðinn á meðan Kristján lætur minna fara fyrir sér, þó hann eigi það til að gantast í systkinum sínum. Þeir bræður eru miklar félagsverur og mikið á ferðinni daginn út og inn.
Katrín og Halldóra eru yngst tvíburanna – og raunar yngstu íbúar þorpsins. Þær eru aðeins sjö mánaða og móðir þeirra hefur í nógu að snúast við að sjá um þær. Hún er því fegin að
eldri börnin á heimilinu skuli hjálpa henni við að sinna þeim. Katrín og Halldóra eru miklir orkuboltar og hafa mikla matarlyst. Þær eru ekki aðeins miðpunktur heimilisins heldur alls þorpsins. (Því miður eigum við ekki mynd af Katrínu og Halldóru.)
Síðast en ekki síst ber að nefna hinar glaðværu systur Bertu og Nóru. Þær eru ársgamlar og iða af lífi. Berta er meira á ferðinni en Nóra og forvitnari. Það styttist í að þær fari að ganga um heimilið og þorpið með tilheyrandi auknu álagi á móður þeirra.
---
Þess ber að geta að það er stefna SOS-barnaþorpanna að systkini skuli ekki aðskilin, heldur fái þau að búa á sama heimili.

