• Jaya ásamt Sudhu og tveimur öðrum SOS-dætrum sínum.
    Jaya ásamt Sudhu og tveimur öðrum SOS-dætrum sínum.

Tilfinningaleg spenna í SOS-fjölskyldu

9.9.2009

Þegar SOS-móðir hættir vegna aldurs og ný móðir tekur við börnunum er ekki sjálfgefið að allt gangi vel fyrir sig og saga Jayu og Sudhu er gott dæmi um það.

Það er að ýmsu að huga fyrir samtök eins og SOS-barnaþorpin sem hafa tugi þúsunda barna í sinni umsjá. Á hverjum degi koma upp vandamál, stór og lítil, sem þarfnast lausnar og stundum virðist lausnin einfaldlega ekki í sjónmáli.

Nýverið þurfti SOS-móðir í barnaþorpi á Indlandi að hætta vegna aldurs. Hún hafði tekið að sér og alið upp nokkur SOS-börn en nú þurfti einhvern til að taka við af henni. Til verskins fékkst SOS-móðirin Jaya. En ekki gekk allt eins og í sögu. Ein stúlkan í hópnum neitaði að samþykkja nýju móðurina.

Sudha er unglingsstúlka og hafði bundist SOS-móður sinni sterkum tilfinningaböndum. Þegar móðirin þurfti að hætta og Jaya kom í staðin hafnaði Sudha henni og neitaði að samþykkja hana sem móður. Hún bannaði Jayu að nota þá muni sem fyrrverandi móðirin hafði notað og ráðlagði systkinum sínum að hunsa hana. Þá sagði hún Jayu hreint út að hún fengi ekki að verða móðir þeirra systkinanna og að hún myndi gera allt til að bola henni burt.

En Jaya gafst ekki upp. Þrátt fyrir þessa höfnun reyndi hún að setja sig í spor stúlkunnar og leit ekki á þessi viðbrögð hennar sem móðgun. Hún var staðráðin í að vinna hjarta Sudhu.

Dag einn veiktist Sudha og þurfti á umönnun að halda. Jaya annaðist hana eins vel og hún gat og tók tillit til þess hvað stúlkan vildi og hvað hún vildi ekki. Smám saman fóru þær að ná saman.

Viku eftir að Sudha náði sér af veikindunum var mæðradagurinn haldinn hátíðlegur í barnaþorpinu. Jaya hafði nýlokið morgunbænum þegar hún skyndilega var umkringd börnum sínum og fékk frá þeim blóm og gjafir. Og það var Sudha sem stóð fyrir öllu saman. Jaya rifjar upp þennan tilfinningaþrungna atburð: „Ég mun aldrei gleyma þessu það sem ég á eftir ólifað.“

Jaya segir að þau gildi sem foreldrar hennar kenndu henni hafi hjálpað henni við uppeldi SOS-barna sinna. „Ég lærði þolinmæði af foreldrum mínum og það hefur hjálpað mér mikið. Foreldrar mínir gáfu sér alltaf tíma til að útskýra fyrir mér kosti og galla alls sem við tókum okkur fyrir hendur,“ útskýrir Jaya.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica